Þú ert hér: Forsíða > Lyfjabókin

A B C D E F G H I Í J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z

Nicorette Orange (afskráð jan. 2009)
hjálparefni til að hætta reykingum
Virkt innihaldsefni: Nikótín
Lausasölulyf Verðflokkur: 0

Nikótínlyf eru notuð sem hjálpartæki til að auðvelda fólki að hætta að reykja eða til að draga úr reykingum. Ef nikótínþörf er mikil getur verið erfitt að hætta reykingum skyndilega. Lyfin skila nikótíni hægt út í blóðið, mun hægar og í minna magni en þegar reykt er en það dugar til þess að slá á helstu fráhvarfseinkenni reykinga. Nicorette Orange er til sem tyggigúmmí. Tyggigúmmíið er lyfjaform þar sem notandinn stjórnar sjálfur skömmtuninni, oftast er mælt með einum skammti á klst. fresti.

Notkun
Lyfjaform:

Tyggigúmmí.

Venjulegar skammtastærðir:

2-4 mg í senn eftir þörfum allt að 24 sinnum á dag.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:

20-30 mín.

Verkunartími:

Einstaklingsbundinn.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:

Engin.

Geymsla:

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:

Lyfið er aðeins notað eftir þörfum.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:

Hætta má notkun lyfsins þegar ekki er lengur þörf á því.

Ef tekinn er of stór skammtur:

Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Mjög stórir skammtar geta valdið ógleði, svitaköstum, æsingi og hröðum hjartslætti. Hafið samband við lækni ef stórir skammtar eru teknir.

Aukaverkanir

Almennar aukaverkanir lyfsins, s.s. höfuðverkur og ógleði, eru sömu einkenni og koma fram við reykingar.

Aukaverkun:Tíðni:Leitið læknis vegna einkenna:Leitaðu strax til læknis:Hættu strax töku lyfsins:
Algeng > 1%Sjaldgæf < 1%Sem eru alvarlegÍ öllum tilvikum
Höfuðverkur, svimi
Ógleði, uppköst, óþægindi frá meltingarvegi
Eymsli í munni og koki, hiksti
Hósti
Svefnleysi
Hjartsláttarónot
Útbrot og mikill kláði
Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu
Milliverkanir

Þær breytingar sem verða á líkamanum við að hætta að reykja, með eða án meðferðar með lyfinu, geta haft áhrif á virkni annarra lyfja. Í sumum tilvikum getur verið nauðsynlegt að breyta skömmtum. Ræddu við lækninn eða lyfjafræðing ef þú ert í vafa.

Langtímanotkun

Nikótínlyf eru aðeins ætluð til tímabundinnar notkunar á meðan reykingum er hætt. Notkun í nokkra mánuði í senn er án vandkvæða.

Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með hjarta- eða æðasjúkdóm
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með magasár
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú sért með stækkaðan skjaldkirtil
- þú sért með sykursýki
- þú sért með æxli í nýrnahettum
- þú takir einhver önnur lyf

MEÐGANGA:
Nokkur hætta er á því að nikótín hafi áhrif á fóstur. Ekki nota lyfið á meðgöngu nema í samráði við lækni. Hafa ber í huga skaðsemi reykinga fyrir fóstur.

BRJÓSTAGJÖF:
Nikótín berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

BÖRN:
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 15 ára.

ELDRA FÓLK:
Venjulegar skammtastærðir.

AKSTUR:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

ÁFENGI:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

ÍÞRÓTTIR:
Leyft við æfingar og í keppni.

ÁVANAHÆTTA:
Nicorette Orange getur verið vanabindandi. Ávanahætta er meiri eftir því sem skammtar eru stærri eða lyfið er notað í lengri tíma og hjá þeim sem hafa tilhneigingu til misnotkunar lyfja eða áfengis.