Fræðsla og forvarnir

Fræðsla og forvarnir > Algengir kvillar > Greinar > Hálsbólga
Hálsbólga
Verkur eða særindi í hálsi er algengur fylgikvilli kvefs (veirusýkingar). Kokið verður þá rautt og bólgið, svo og hálskirtlarnir. Eitlar á hálsi geta bólgnað. Erfiðleikar eru samfara því að kyngja og hósta. Særindi í hálsi án kvefeinkenna getur verið hálsbólga af völdum baktería.

SPURNINGAR OG SVÖR


Hvenær á ég að leita til læknis?
  • ef þú átt erfitt með að anda.
  • ef mjög erfitt er að kyngja.
  • ef þér er illt í hálsinum og þú ert með yfir 38°C hita lengur en í fjóra daga, einkum ef skóf er á hálskirtlunum eða þú finnur fyrir graftarnabba í þeim.
  • ef þér hefur ekki batnað að viku liðinni.


Hvað get ég gert?
Forðastu reykingar.

Get ég fengið lyf án lyfseðils?
Hálstöflur hafa engin áhrif á sýkingu í hálsi, en þær geta slegið á óþægindin um hríð. Strepsils munnsogstöflur eru notaðar við vægum sýkingum í munni og hálsi. Einnig hafa Dekadin hálstöflur deyfandi áhrif á særindin sem fylgja hálsbólgu. Ef þú finnur fyrir miklum kvölum getur þú tekið verkjastillandi lyf.


  • Greinar
  • Spurt og svarað
Þriðjudagurinn 7. agúst 2007
Augnþurrkur

Það sem oft er kallað augnþreyta lýsir sér gjarnan með særindum, sviða og kláða og er oft á tíðum vegna augnþurrks. Helsta orsök þurrks í augum er skortur á táravökva. Tárakirtlarnir framleiða táravökva í sífellu og augnlokin miðla honum jafnt yfir allt yfirborð augans. Framleiðslan helst jafnan í hendur við uppgufun a...

Meira