Fræðsla og forvarnir

Fræðsla og forvarnir > Astmi > Greinar > Hvað er frjókornaofnæmi?
Hvað er frjókornaofnæmi?
Frjókornaofnæmi er eitt algengasta ofnæmið sem kemur fram í nefi og augum. Ástæðan er ofnæmi fyrir grasi, birki eða súrum þ.e. frjókornum frá gróðri. Einkennin koma yfirleitt fram á sama tíma á hverju ári og sumum reynist erfitt að greina milli svokallaðs sumarkvefs og frjóofnæmis. Margir þjást af ítrekuðu kvefi á hverju sumri áður en þeir átta sig á því að um frjókornaofnæmi er að ræða. Reynið því að átta ykkur á því hvort hugsanleg tengsl geti verið milli einkenna og gróðurs í kringum ykkur.

Eitt helsta einkenni frjókornaofnæmis og það margir finna fyrst fyrir, er kláði í augum. Aðeins örfá frjókorn í loftinu geta framkallað augnkláða. Augun verða rauðsprengd og það rennur úr þeim.

Fyrstu einkenni frá nefi eru síendurteknir hnerrar. Önnur einkenni sem miklum óþægindum valda er kláði í nefinu, sem oft veldur svokallaðri ofnæmiskveðju, nefnuddi og grettum sem geta verið býsna spaugilegar. Þá fer að renna stöðugt úr nefinu, sem þýðir að vasaklúturinn er sífellt á lofti. Einnig getur nefið stíflast eða slímhúð þrútnað svo að erfitt verður að draga andann gegnum nefið.

Nauðsynlegt er að hafa í huga að frjókornaofnæmi getur oft valdið astmaeinkennum.

Efni fengið af Astma og ofnæmisvef GlaxoSmithKline

Fræðslubæklingur GlaxoSmithKline um frjóofnæmi

  • Greinar
  • Spurt og svarað
Þriðjudagurinn 7. agúst 2007
Astmi á meðgöngu

Astmi er mjög sveiflukenndur sjúkdómur. Stundum finnur þú lítið sem ekkert fyrir astmanum en síðan koma tímabil með verri líðan og tíðum astmaköstum. Þannig er það einnig með astma á meðgöngu. Sumum konum líður miklu betur en öðrum getur versnað. Hafi astminn versnað á fyrstu meðgöngu er ekki þar með sagt að svo verð...

Meira