Astmi

Ef þú vilt fræðast um astma er nauðsynlegt að þú þekkir örlítið til þess hvernig lungun eru byggð upp. Við drögum andann inn um nef og munn. Þaðan berst loftið niður um barkann sem greinist í tvær sverar berkjur sem liggja hvor niður í sitt lunga. Í lungunum greinast berkjurnar síðan aftur og aftur í sífellt smærri berkjugreinar og enda að lokum í örlitlum sekkjum eða lungnablöðrum. Loftið streymir um berkjurnar allt til lungnablaðranna og þar fara fram loftskipti. Líkaminn tekur til sín súrefni úr innandaða loftinu og skilar koltvísýringi úr blóðinu í loftinu sem við öndum frá okkur.

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.