Ferðaapótek er sjúkra- og lyfjataska sem inniheldur allt það nauðsynlegasta sem á þarf að halda ef upp koma vandamál.
Það fer að sjálfsögðu eftir þörfum og áfangastað hvers og eins, hvað hentar að hafa í ferðaapótekinu. Sé förinni heitið annað en til hinna venjulegu ferðamannastaða eða á staði þar sem erfitt er að ná í lækni, getur þurft að bæta við eftirfarandi lista.
Dæmi um ferðaapótek:
• Verkjatöflur
• Ferðaveikitöflur við ógleði
• Sýrubindandi lyf við brjóstsviða
• Stoppandi töflur við niðurgangi
• Salt og glúkósa við vökvatapi
• Ofnæmistöflur við hvers kyns ofnæmi
• Hálstöflur við særindum í hálsi
• Nefdropar, notaðir í flugtaki og lendingu og minnka bjúg og stíflu í nefi og eyrum
• Plástur
• Sáraumbúðir
• Sótthreinsandi þurrkur á sár
• Hælsærisplástur
• Skæri og flísatöng
• Vörn gegn flugnabiti
• Áburður á skordýrabit, t.d. steraáburður eða After-bite
Sjúklingar þurfa að taka með sér nægilegt magn af nauðsynlegum lyfjum.
Ef þú ert á leið til landa þar sem malaría er landlæg þarftu að hafa með þér fyrirbyggjandi malaríulyf. Þú færð malaríulyf í apótekum Lyfju gegn lyfseðli frá lækni.
Ef þú notar gleraugu er einnig gott að hafa meðferðis auka gleraugu eða linsur eða ávísun á gleraugu frá augnlækni ef eitthvað skyldi koma fyrir gleraugun þín í ferðinni.