Fræðsla og forvarnir

Fræðsla og forvarnir > Ferðir og ferðalög > Greinar > Ferðaveiki
Ferðaveiki
Jóna Valdís Ólafsdóttir, lyfjafræðingur

Ferðaveiki (sjóveiki, bílveiki eða flugveiki) getur lagst á alla en er algengari meðal barna, unglinga og kvenna. Það má segja að ferðaveiki komi fram þegar augun segja heilanum að maður sé kyrr á sama tíma og jafnvægisskynfærin segja heilanum að maður sé á fullri ferð. Heilinn á þá í erfiðleikum með að túlka þessi misvísandi skilaboð og það veldur því að líkaminn sýnir einkenni ferðaveiki.

Einkenni

Þreyta og höfuðverkur, litabreytingar á andliti, kaldur sviti, munnþurrkur sem svo breytist í of mikla munnvatnsframleiðslu, svimi, ógleði og uppköst. Sumir fá aukin einkenni ef þeir sjá ákveðna hluti eða finna ákveðna lykt.

Góð ráð

Vertu úthvíld(ur) fyrir ferðina. Ekki drekka áfengi fyrir eða á meðan á ferðinni stendur. Passaðu að maginn sé ekki tómur en ekki borða of mikið. Reyndu að hafa það náðugt, jafnvel að sofna ef hægt er. Ekki lesa eða slíkt heldur reyndu að hafa augun á sjóndeildarhringnum. Sittu í framsæti bílsins eða fremst í rútunni þá hefurðu betri tilfinningu fyrir hreyfingum farartækisins. Opnaðu gluggann og andaðu að þér fersku lofti eða farðu út úr rútunni þegar hún stoppar. Hafðu loftræstinguna í gangi ef þú ert í flugvél. Vertu utandyra ef þú ferðast með skipi eða vertu í miðju skipinu þar sem hreyfingin er minnst. Reyndu að láta þér ekki verða of heitt.

Lyf við ferðaveiki

Hægt er að koma í veg fyrir ferðaveiki með því að taka inn lyf sem fást án lyfseðils í apótekum. Það er mismunandi eftir tegund í hversu langan tíma lyfin virka. Þess vegna er gott að gera sér grein fyrir því hversu langan tíma ferðin mun taka svo að lyfin séu við hæfi og virkni þeirra endist allan tímann.
Lyf við ferðaveiki eru merkt með rauðum viðvörunarþríhyrningi. Það þýðir að þau geta haft sljóvgandi áhrif og það er nauðsynlegt að hafa það í huga, t.d. ef þú þarft að stjórna ökutæki hluta leiðarinnar. Það er mismunandi hversu sljóvgandi lyfin eru eftir því hvaða tegund þú tekur inn. Einnig eru sljóvgandi áhrif þeirra nokkuð einstaklingsbundin. Þú skalt forðast að drekka áfengi samhliða lyfjum við ferðaveiki þar sem það eykur sljóvgandi áhrifin.



Koffínátín
Inniheldur tvö virk efni, dífenhýdramín og koffein. Dífenhýdramín er ofnæmislyf sem einnig hefur töluverð róandi áhrif. Koffeinið dregur úr sljóvgandi áhrifum dífenhýdramíns. Verkunartími er um 4-6 klukkustundir og er því notað í styttri ferðum. Lyfið er tekið inn ½ -1 klst. fyrir brottför og síðan á 4-6 klst. fresti ef þörf krefur. Það er ekki ætlað börnum yngri en 4 ára.



Postafen
Inniheldur virka efnið meklózín. Meklózín er notað við ógleði og uppköstum en einnig við ferðaveiki. Verkunartími er um 12 klukkustundir og er því notað í lengri ferðum. Lyfið er tekið inn 1-2 klst. fyrir brottför og síðan á 12 klst. fresti ef þörf krefur. Það er ekki ætlað börnum yngri en 2 ára.



Pektólín
Inniheldur virka efnið dífenhýdramín. Pektólín er oftast selt sem hóstastillandi mixtúra en má einnig nota gegn ferðaveiki hjá mjög ungum börnum. Lyfið er þá gefið ½ -1 klst. fyrir brottför og síðan á 4-6 klst. fresti ef þörf krefur.

  • Greinar
  • Spurt og svarað
Þriðjudagurinn 7. agúst 2007
Bólusetningar

Það er ávallt nauðsynlegt að vera vel bólusettur en það er sérstaklega mikilvægt þegar ferðast er til útlanda. Almennt má segja að vegna ferða til landa eins og Norðurlandanna, Suður-Evrópu, Madeira, Kanaríeyja, Bandaríkjanna, Kanada, Ástralíu, Nýja-Sjálands og Japan þurfi ekki sérstakra bólusetningu. Hins vegar er r...

Meira