Fræðsla og forvarnir

Fræðsla og forvarnir > Ferðir og ferðalög > Greinar > Flug og hellur í eyrum
Flug og hellur í eyrum
Þegar flugvélin hefur sig til flugs og lendir breytist loftþrýstingurinn í farþegarýminu. Margir finna þá fyrir óþægindum í eyrum og fá jafnvel hellur. Börn eru sérstaklega viðkvæm fyrir þessu. Óþægindin verða vegna þess að þrýstingurinn inni í eyranu er meiri heldur en þrýstingurinn utan þess. Til þess að láta sér líða betur er nauðsynlegt að reyna að jafna þrýstinginn utan og innan eyrans.

Góð ráð

• Drekktu, tyggðu (t.d. tyggigúmmí) eða geispaðu til að létta á þrýstingnum.

• Gefðu ungbörnum brjóst, pela eða snuð til að létta á þrýstingnum.

• Ef þú ert með stíflað nef vegna kvefs eða ofnæmis ættirðu að nota nefúða eða nefdropa um hálftíma áður en flugvélin fer á loft og lendir.

Nefúðar/nefdropar við kvefi eru:

Nezeril nefúði, Otrivin nefdropar, Otrivin nefúði, Otrivin Menthol nefúði

Nefúði við ofnæmi er:

Livostin nefúði

Allir þessir nefúðar/nefdropar fást í næstu verslun Lyfju, án lyfseðils.


  • Greinar
  • Spurt og svarað
Þriðjudagurinn 7. agúst 2007
Bólusetningar

Það er ávallt nauðsynlegt að vera vel bólusettur en það er sérstaklega mikilvægt þegar ferðast er til útlanda. Almennt má segja að vegna ferða til landa eins og Norðurlandanna, Suður-Evrópu, Madeira, Kanaríeyja, Bandaríkjanna, Kanada, Ástralíu, Nýja-Sjálands og Japan þurfi ekki sérstakra bólusetningu. Hins vegar er r...

Meira