Fræðsla og forvarnir

Fræðsla og forvarnir > Ferðir og ferðalög > Greinar > Flug og húðþurrkur
Flug og húðþurrkur
Vegna þess hversu þurrt loftið er um borð í flugvélum, tapar líkaminn nokkuð af vökva á meðan á flugferðinni stendur. Þess vegna er mikilvægt að muna að drekka vel á lengri flugferðum. Forðist áfengi og drykki sem innihalda koffín því þau hafa þurrkandi áhrif á líkamann.

Margir fá þurra húð um borð í flugvélum og eftir að komið er á áfangastað. Það getur því verið gott að hafa rakagefandi krem fyrir andlit og hendur með sér í handfarangri eða í veskinu.

Kannaðu úrval rakagefandi og frískandi krema í næstu verslun Lyfju.


  • Greinar
  • Spurt og svarað
Þriðjudagurinn 7. agúst 2007
Bólusetningar

Það er ávallt nauðsynlegt að vera vel bólusettur en það er sérstaklega mikilvægt þegar ferðast er til útlanda. Almennt má segja að vegna ferða til landa eins og Norðurlandanna, Suður-Evrópu, Madeira, Kanaríeyja, Bandaríkjanna, Kanada, Ástralíu, Nýja-Sjálands og Japan þurfi ekki sérstakra bólusetningu. Hins vegar er r...

Meira