Fræðsla og forvarnir

Fræðsla og forvarnir > Ferðir og ferðalög > Greinar > Flug og reykbindindi
Flug og reykbindindi
Það er bannað að reykja í flestum flugvélum og brot á því er refsivert. Á mörgum stöðum, bæði hérlendis og erlendis er líka bannað að reykja. Það getur verið erfitt þegar þörfin fyrir sígarettu lætur á sér kræla.

Það má fá nikótínlyf í margs konar formi og styrkleika:

• Tyggigúmmí

• Plástrar, bæði sólarhrings- og dagplástrar

• Munnsogstöflur

• Munnstykki (til innöndunar)

• Tungurótartöflur

• Nefúði

Nikótín má nota til þess að komast yfir stutt tímabil án þess að reykja, eins og t.d. flugferðir. Þau eru þó fyrst og fremst ætluð til þess að aðstoða fólk við að hætta alveg að reykja.

Hjá Lyfju fæst úrval nikótínlyfja sem uppfylla nikótínþörfina þegar á þarf að halda. Komdu í næstu verslun og sérþjálfað starfsfólk mun aðstoða þig við að velja hvaða nikótínlyf hentar þér best.

Sjá nánar undir Nicorette og Nicotinell í Lyfjubókinni á forsíðu www.lyfja.is og einnig á fræðsluvef Lyfju um reykingar

  • Greinar
  • Spurt og svarað
Þriðjudagurinn 7. agúst 2007
Bólusetningar

Það er ávallt nauðsynlegt að vera vel bólusettur en það er sérstaklega mikilvægt þegar ferðast er til útlanda. Almennt má segja að vegna ferða til landa eins og Norðurlandanna, Suður-Evrópu, Madeira, Kanaríeyja, Bandaríkjanna, Kanada, Ástralíu, Nýja-Sjálands og Japan þurfi ekki sérstakra bólusetningu. Hins vegar er r...

Meira