Fræðsla og forvarnir

Fræðsla og forvarnir > Húðsjúkdómar > Greinar > Hvert er hlutverk húðarinnar?
Hvert er hlutverk húðarinnar?
Húðin er stærsta líffæri líkamans og gegnir margþættu hlutverki.

Húðin: er hjúpur sem ver okkur fyrir skemmdum; ytra áreiti, er hitastillir, losar okkur við úrgangsefni (svita), er skynfæri, framleiðir D-vítamín, hindrar vökvatap frá líkamanum.

Hvernig er húðin byggð upp?

Húðin er byggð úr þremur lögum.

Ysta lagið er yfirhúð (epidermis). Það er örþunnt (eins og pappírsblað) og er byggt upp af húðfrumum og litarfrumum, sem framleiða litarefni (melanin), sem gefur húðinni lit.

Leðurhúðin (dermis) er miðlag húðar. Þetta er stoðvefslag, sem inniheldur æðar, taugar og bandvef. Hársekkir, fitu- og svitakirtlar eru einnig í þessu lagi.

Sólargeislun á húðina skemmir bandvefsþræðina í leðurhúðinni og hefur þar með afgerandi áhrif á hrukkumyndun í húðinni.

Fitulagið er þriðja og neðsta lagið. Hlutverk þess er fyrst og fremst einangrun og orkubirgðir

Efni fengið af heimasíðu Landlæknis birt með góðfúslegu leyfi.
  • Greinar
  • Spurt og svarað
Þriðjudagurinn 7. agúst 2007
Acne (bólur)

Acne vulgaris er húðsjúkdómur sem orsakast af breytingum í fitukirtlum húðarinnar. Acne breytingar eru aðallega í andliti, en einnig á bolnum. Breytingarnar eru af nokkrum gerðum: 1. Opnir fílapenslar, svartir 2. Lokaðir fílapenslar, hvítir 3. Papúlur, rauðar upphækkanir 4. Pústúlur, eins og graftarbólur 5. Djúpar br...

Meira