Fræðsla og forvarnir

Fræðsla og forvarnir > Húðsjúkdómar > Greinar > Rósroði
Rósroði
Steingrímur Davíðsson, húðlæknir

Rosacea er krónískur húðsjúkdómur þar sem skiptast á betri og verri tímabil. Oftast eru breytingarnar á kinnum, nefi , höku og enni. Húðbreytingarnar samanstanda af:

1. Húðroða
2. Aukin æðateikning í andlitinu
3. Litlar upphækkanir í húðinni
4. Bólga í húðinni
5. Litlar graftarbólulíkar breytingar

Margir sjúklingar finna að ýmislegt utanaðkomandi veldur versnun á einkennunum. Dæmi eru:
Heitir drykkir
Sterkt kryddaður matur
Áfengi
Sól
Hitabreytingar

Sjúkdómurinn er nokkuð algengur. Kemur oft fyrir á bilinu 30-40 ára.

Orsök er óþekkt. Sjúkdómurinn smitar ekki. Í einstaka tilfellum hleypur ofvöxtur í húðina á nefinu (rhinophyma). Þetta gerist þó nær eingöngu hjá karlmönnum.

Um 50% sjúklinga hafa einkenni frá augum svo sem sviða, bólgur og önnur óþægindi.

Meðferð: Besta meðferð eru tetracyclin lyf sem eru sýklalyf (t.d. Doxylin). Þá er oft byrjað á fullum skammti og síðan trappað niður í lægsta skammt sem heldur sjúkdómnum niðri. Þegar húðin hefur verið góð í nokkurn tíma má hætta með lyfið og byrja síðan aftur blossi sjúkdómurinn upp á ný.

Við vægum einkennum má nota krem sem innihalda metronidazol, azelaic acid krem eða krem sem innihalda brennistein (Sulfur). Einnig er hægt að nota lausn sem inniheldur sýklalyfið clindamycin. Við sjúkdómi sem svarar illa meðferð má nota laser meðferð.

Varast skal að nota sterk kortison krem í andlitið (sterarkrem) því það gerir sjúkdóminn verri.

Efni fengið af vefsíðu höfundar og birt með góðfúslegur leyfi.


  • Greinar
  • Spurt og svarað
Þriðjudagurinn 7. agúst 2007
Acne (bólur)

Acne vulgaris er húðsjúkdómur sem orsakast af breytingum í fitukirtlum húðarinnar. Acne breytingar eru aðallega í andliti, en einnig á bolnum. Breytingarnar eru af nokkrum gerðum: 1. Opnir fílapenslar, svartir 2. Lokaðir fílapenslar, hvítir 3. Papúlur, rauðar upphækkanir 4. Pústúlur, eins og graftarbólur 5. Djúpar br...

Meira