Húðsjúkdómar

Húðin er í rauninni stærsta líffæri líkamans. Hún gegnir ýmsum hlutverkum, s.s. að verja líkamann fyrir utanaðkomandi áreiti eins og örverum, geislum og framandi efnum. Auk þess tekur hún þátt í að viðhalda hita- og rakastigi líkamans. Fitan í húðinni ver líkamann gegn kulda og svitalosun kemur í veg fyrir ofhitnun. Taugar í húðinni nema örvun, s.s. vegna hita, snertingar og þrýstings og nema einnig sársauka. Húðin myndar einnig D-vítamín fyrir áhrif útfjólublás ljóss. Það er því mikilvægt að húðin sé heilbrigð og heil.

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.