Fræðsla og forvarnir

Fræðsla og forvarnir > Krabbamein > Greinar > Blöðruhálskirtilskrabbamein
Blöðruhálskirtilskrabbamein
Krabbamein í blöðruhálskirtli er algengasta krabbamein í karlmönnum á vesturlöndum.

Faraldsfræði:

Tíðni krabbameins í blöðruhálskirtli eykst með auknum aldri. Svertingjar eru tvöfalt líklegri til að fá sjúkdóminn en hvítir. Talið er að ævilíkur hvítra karlmanna á vesturlöndum á að fá blöðruhálskirtilskrabbamein séu um 8 %. Vitað er að líkur á blöðruhálskirtilskrabbameini aukast því fjær miðbaug sem menn búa. Þannig er algengi sjúkdómsins á Norðurlöndum um 22 tilfelli á hverja 100.000 íbúa, en ekki nema 7 tilfelli á hverja 100.000 íbúa nær miðbaug í Asíu.

Áhættuþættir:

Auk aldurs og svarts hörundslitar hefur áhætta á blöðruhálskirtilskrabbameini verið tengd fjölskyldusögu. Þó svo að aukin hlutdeild fitu í fæðu, ófrjósemisaðgerðir og kynsjúkdómar séu stundum taldir til áhættuþátta blöðruhálskirtilskrabbameins eru tengl þar á milli algerlega ósönnuð.

Einkenni:

Staðbundið krabbamein í blöðruhálskirtil veldur oft litlum sem engum einkennum. Þegar æxlið hefur náð tiltekinni stærð eru fyrstu einkenni oft þvagtregða. Einstöku sinnum ber á blóði í þvag, sviða við þvaglát og jafnvel þvagfærasýkingu.

Hafi krabbameinið sáð sér til staðbundinna eitlastöðva í grindarholi eru fyrstu einkenni um sjúkdóminn oft bjúgur á ganglimum. Blöðruhálskirtilskrabbamein er vel þekkt fyrir að sá sér til beina og veldur því oft beinverkjum.

Skimun og sjúkdómsgreining:

Auðvelt er að þreifa blöðruhálskirtilinn um endaþarm. Það er fljótleg skoðun og áhættulítil. Hinsvegar er hún óþægileg. Mæla má ákveðið efni í blóði, svokallað PSA (Prostate Specific Antigen), og er gildi þess hjálplegt við að fylgja eftir sjúkdómsgangi í blöðruhálskirtilskrabbameini. Mælt er með að karlmenn sem náð hafa fimmtugu fari árlega í blöðruhálskirtilsþreifingu og PSA-mælingu. Karlmenn sem taldir eru vera í aukinni áhættu á að fá krabbamein í blöðruhálskirtil ættu e.t.v. að hefja þess skimun fyrr, eða uppúr fertugu.

Vakni grunur um krabbamein í blöðruhálskirtli er greiningin staðfest með sýnatöku úr kirtlinum, oft með hjálp ómunar. Þetta er gert í staðdeyfingu og hefur bæði sýkingar- og blæðingarhættu í för með sér.

Meinafræði:

Flest krabbamein í blöðruhálskirtli eru af svokallaðri kirtilgerð. Séu þessi krabbamein látin óáreytt, vaxa þau staðbundið í kirtlinum og til nærliggjandi líffæra, s.s. þvagblöðru og þvagrásar. Einnig sá þau sér um sogæðar til eitlastöðva í grindarholi og þaðan til fjarlægari líffæra. Algengast er að meinvörp finnist í beinum. Sjaldgæfara er að finna meinvörp í lifur eða lungum.

Stigun, meðferð og horfur:

Meðferð á krabbameini í blöðruhálskirtli og horfur ráðast mjög af stigi sjúkdómsins. Þannig má oft lækna staðbundið mein sem ekki hefur sáð sér. Hafi sjúkdómurinn myndað fjarmeinvörp beinist meðferð gjarnan að því að hægja á sjúkdómnum og meðhöndla hliðarverkanir, svo sem verki vegna meinvarpa í beinum.

Geislameðferð og eða skurðaðgerð gagnast gjarnan vel við staðbundnu blöðruhálskirtilmeini. Þvagleki er langvarandi aukaverkun af þessum meðferðum í um 5 % tilvika. Getuleysi er alvarlegur og algengur fylgikvilli þessara aðgerða. Í sumum tilvikum getur lyfjameðferð með sildenafil og öðrum lyfjum komið að gagni við slíkar kringumstæður.

Blöðruhálskirtilskrabbamein er oftar en ekki afar næmt fyrir karlhormónum – testósteróni. Vitað er að verulega má hamla og hægja á vexti þessara krabbameinsfrumna með því að hindra framleiðslu testósteróns og/eða hindra áhrif þess á krabbameinsfrumurnar sjálfar. Þetta er gjarnan gert með því að fjarlægja kynkyrtlana, eistun. Einnig eru til lyf sem hindra framleiðslu testósteróns í eistum og nýrnahettum, sem og lyf sem hamla vaxtarhvetjandi verkun testósteróns á blöðruhálskirtilskrabbameinsfrumur. Þessi lyf koma oft að góðu gagni í meðferð á krabbameini sem hefur sáð sér og myndað fjarmeinvörp.

Loks eru ýmis krabbameinslyf notuð við meðferð á blöðruhálskirtilskrabbameini. Til þessara lyfja er gjarnan gripið ef hormónameðferð skilar ekki tilætluðum árangri.

Bráðatilvik:

Vegna sækni blöðruhálskirtilskrabbameins í bein, getur sjúkdómurinn valdið bráðum einkennum sem geta valdið miklum óþægindum og skaða nema rétt sé við þeim brugðist og tímanlega. Eitt þessara einkenna er vegna mænuþrýstings. Krabbameinsæxli sem vex í hryggsúlu getur valdið þrýstingi á mænu og mænuskaða ef ekkert er að gert. Einkenni þessa eru gjarnan verkur í baki og einkenni um taugaskaða geta fylgt, svo sem þvag- og hægða leki eða tregða, dofi í fótum og máttleysi. Áríðandi er að sjúklingar með þessi einkenni leiti læknis sem fyrst og fái viðeigandi meðferð. Sem dæmi má nefna að aðeins eru um 10 % líkur á að lömun í fótum gangi til baka við meðferð sé hún tilorðin vegna mænuþrýstings.

Sigurður Böðvarsson læknir Efni fengið af vefsíðu höfundar. Birt með góðfúslegur leyfi höfundar


  • Greinar
  • Spurt og svarað
Þriðjudagurinn 7. agúst 2007
Blöðruhálskirtilskrabbamein

Krabbamein í blöðruhálskirtli er algengasta krabbamein í karlmönnum á vesturlöndum. Faraldsfræði: Tíðni krabbameins í blöðruhálskirtli eykst með auknum aldri. Svertingjar eru tvöfalt líklegri til að fá sjúkdóminn en hvítir. Talið er að ævilíkur hvítra karlmanna á vesturlöndum á að fá blöðruhálskirtilskrabbamein séu...

Meira