Fræðsla og forvarnir

Fræðsla og forvarnir > Krabbamein > Greinar > Leghálskrabbamein
Leghálskrabbamein
Tíðni leghálskrabbameins hefur farið lækkandi undanfarna áratugi. Þetta er þakkað skipulagri skimun með leghálsstroki. Greinist forstigsbreytingar að krabbameini á leghálskrabbameini má með réttuð aðgerðum yfirleitt fyrirbyggja sjúkdóminn.

Faraldsfræði:

Um 45% kvenna með leghálskrabbamein eru undir 35 ára aldri. Í þróunarlöndum er leghálskrabbamein ein algengasta ástæða dauða kvenna. Líklega er þetta vegna lélegrar heilbrigðisþjónustu og forvarna í þessum löndum.

Áhættuþættir:

HPV-veira er þekktur áhættuþáttur. Reyndar eru um 90% leghálskrabbameina rakin til þessarar veirusýkingar. Veiran smitast við samfarir.

Reykingar eru einnig þekktur áhættuþáttur leghálskrabbamein. Er talið að ónæmisbælandi verkun reykinga eigi hér hlut að máli.

Aðrir ónæmisbælandi þættir eins og ónæmisbælandi lyf eða sjúkdómar (HIV sýking – AIDS) leiða til aukinnar tíðni leghálskrabbameins.

Einkenni:

Einkenni geta verið margvísleg, s.s. milli-tíðablæðing, óvenju miklar blæðingar og/eða verkir við blæðingar. Blæðing eftir samfarir. Verkir í kvið eða grindarbotni, þvag- og hægðatregða.

Skimun:

Leghálsstrok er einföld, markviss og auðveld skimun. Mælt er með að allar konur 18 ára og eldri sem stunda kynlíf séu skimaðar árlega í 3 ár og síðan á 2-3 ára fresti. Vakni grunur um forstigsbreytingar er mælt með tíðari sýnatökum. Í sumum tilvikum er jafnvel mælt með töku vefjasýnir úr leghálsi til að útiloka krabbamein.

Meinafræði:

Algengast er svokallað flöguþekjukrabbamein. Kirtilkrabbamein telur nú um fimmtung allra leghálskrabbameina. Afar sjaldgæft er að sjá aðrar tegundir krabbameina í leghálsi svosem eitlakrabbamein, sortuæxli (melanoma) og sarkmein.

Stigun:

Sjúkdómurinn er stigaður með tölvusneiðmyndum. Segulómun er mjög gagnleg við að meta útbreiðslu í grindarholi. Sjúkdómurinn er flokkaður í 4 stig allt eftir útbreiðslu.

Meðferð:

Að vanda byggir meðferð á mörgum þáttum, m.a. stigi sjúkdómsins og ásigkomulagi sjúklingsins. Beitt er skurð-, geisla- og lyfjameðferð allt eftir því sem við á. Nýlega hefur afbrigði af A-vítamíni (13 cis-retinoic acid) og ónæmismeðferð (interferon alfa 2a) reynst gagnlegt í meðferð á sjúkdómnum í völdum tilvikum.

Sigurður Böðvarsson læknir Efni fengið af vefsíðu höfundar. Birt með góðfúslegur leyfi höfundar


  • Greinar
  • Spurt og svarað
Þriðjudagurinn 7. agúst 2007
Blöðruhálskirtilskrabbamein

Krabbamein í blöðruhálskirtli er algengasta krabbamein í karlmönnum á vesturlöndum. Faraldsfræði: Tíðni krabbameins í blöðruhálskirtli eykst með auknum aldri. Svertingjar eru tvöfalt líklegri til að fá sjúkdóminn en hvítir. Talið er að ævilíkur hvítra karlmanna á vesturlöndum á að fá blöðruhálskirtilskrabbamein séu...

Meira