Kynsjúkdómar

Sjúkdómar sem smita við samfarir nefnast kynsjúkdómar. Smit á sér oftast stað við beina snertingu slímhúða. Sýklar sem valda kynsjúkdómum lifa einungis við líkamshita og deyja utan líkamans. Allir vita um tilvist kynsjúkdóma en fáir tala um þá. Fordómar gagnvart kynsjúkdómum eru útbreiddir og vanþekking á þeim er algeng. Vegna fordóma dregur fólk oft að leita læknis, finnst það bæði óþægilegt og skammarlegt. Líkurnar á því að fá kynsjúkdóm aukast eftir því sem rekkjunautar eru fleiri. Hins vegar geta allir fengið kynsjúkdóm, jafnvel þótt rekkjunautur hafi aðeins verið einn. Sjúkdómarnir eru algengastir hjá ungu fólki sem ekki er á föstu. Við ný kynni eru mestar líkur á að smitast af kynsjúkdómi. Mögulegt er að hafa fleiri en einn kynsjúkdóm samtímis og af sumum þeirra er hægt að smitast oftar en einu sinni.

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.