Fræðsla og forvarnir

Fræðsla og forvarnir > Ofnæmi
Ofnæmi
Eitt algengast ofnæmið er frjókornaofnæmi en það kemur fram í nefi og augum. Ástæðan er ofnæmi fyrir grasi, birki eða súrum þ.e. frjókornum frá gróðri. Einkennin koma yfirleitt fram á sama tíma á hverju ári og sumum reynist erfitt að greina milli svokallaðs sumarkvefs og frjóofnæmis. Margir þjást af ítrekuðu kvefi á hverju sumri áður en þeir átta sig á því að um frjókornaofnæmi er að ræða. Reynið því að átta ykkur á því hvort hugsanleg tengsl geti verið milli einkenna og gróðurs í kringum ykkur.




  • Greinar
  • Spurt og svarað
Þriðjudagurinn 7. agúst 2007
Brjóstamjólk og ónæmiskerfið

Getur brjóstagjöf haft varanleg áhrif á heilsu barnsins? Nýlega hefur verið sýnt fram á langvarandi áhrif brjóstagjafar á ónæmiskerfi barnsins. Þetta veitir vörn fyrir sýkingum árum saman og niðurstöður faraldsfræðilegrar rannsóknar í Svíþjóð benda til þess að vörn fyrir vissum sýkingum geti varað í allt ...

Meira