Ofnæmi

Eitt algengast ofnæmið er frjókornaofnæmi en það kemur fram í nefi og augum. Ástæðan er ofnæmi fyrir grasi, birki eða súrum þ.e. frjókornum frá gróðri. Einkennin koma yfirleitt fram á sama tíma á hverju ári og sumum reynist erfitt að greina milli svokallaðs sumarkvefs og frjóofnæmis. Margir þjást af ítrekuðu kvefi á hverju sumri áður en þeir átta sig á því að um frjókornaofnæmi er að ræða. Reynið því að átta ykkur á því hvort hugsanleg tengsl geti verið milli einkenna og gróðurs í kringum ykkur.




© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.