
Sykursýki
stafar af því að hormónið insúlín skortir eða að það hefur ekki nægileg
áhrif. Insúlín er nauðsynlegt fyrir flutning sykurs og amínósýra úr
blóði inn í frumur. Einkenni sykursýki stafa annars vegar af of miklum
sykri í blóði, og hins vegar af skorti á sykri í frumum. Þegar
blóðsykur hækkar mikið byrjar sykurinn að skiljast út með þvagi. Mikill
vökvi fylgir sykrinum í þvagi, og því leiðir þetta til tíðra þvagláta
og mikils þorsta. Þegar frumur skortir sykur er fita brotin niður sem
orkugjafi. Við þetta safnast upp niðurbrotsefni fitu, ketónar, sem geta
í miklu magni verið skaðlegir. Eitt einkenni uppsöfnunar ketóna er
aseton lykt af andardrætti. Önnur einkenni eru þreyta, þokusýn,
þyngdartap og svengdartilfinning. Ómeðhöndluð sykursýki leiðir til
alvarlegri einkenna.