Fréttir

Breytingar á niðurgreiðslu lyfja
Þriðjudagurinn 19. janúar 2010
 
Á síðasta ári og í byrjun þessa árs hafa orðið nokkrar breytingar á niðurgreiðslu fimm algengra lyfjaflokka hjá Sjúkratryggingastofnun Íslands.
Helstu breytingarnar eru:

1. janúar 2010:

  • Öndunarfæralyf (R03A og R03B), eingöngu ódýrasta lyfið og lyf innan við 290% dýrari eru niðurgreidd, óháð styrk lyfsins.
  • Önnur astma- og ofnæmislyf eru ekki niðurgreidd.
  • Læknir getur sótt um niðurgreiðslu fyrir sinn sjúkling reynist það nauðsynlegt vegna sjúkdómsmeðhöndlunar.

1. nóvember 2009:

  • Beinþéttnilyf (M05B), eingöngu ódýrasta lyfið og lyf innan við 20% dýrari eru niðurgreidd, óháð styrk lyfsins.
  • Önnur beinþéttnilyf eru ekki niðurgreidd.
  • Læknir getur sótt um niðurgreiðslu fyrir sinn sjúkling reynist það nauðsynlegt vegna sjúkdómsmeðhöndlunar.

1. október 2009:

  • Blóðþrýstingslækkandi lyf (C09), eingöngu ódýrasta lyfið og lyf með einu virku efni og innan við 150% dýrari, og lyf með fleiri en einu virku efni og innan við 10% dýrari, eru niðurgreidd, óháð styrk lyfjanna.
  • Önnur blóðþrýstingslækkandi lyf eru ekki niðurgreidd.
  • Læknir getur sótt um niðurgreiðslu fyrir sinn sjúkling reynist það nauðsynlegt vegna sjúkdómsmeðhöndlunar.

1. mars 2009:

  • Börn 17ára og yngri greiða nú sama og elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir sín lyf.
  • Einstaklingur á fullum atvinnuleysisbótum greiðir áfram almennt gjald í apótekum en á kost á endurgreiðslu á mismun miðað við útreikning fyrir elli- og örorkulífeyrisþega. Viðkomandi þarf að gefa Vinnumálastofnun leyfi til að senda upplýsingar til Sjúkratrygginga Íslands sem mun síðan greiða mismuninn inn á reikning viðkomandi. Hægt er að fara inn á vef Vinnumálastofnunar (vmst.is) og gefa þetta leyfi.
  • Magabólgulyf (A02BC) er nú hægt að fá ávísað í 100 daga skammti í stað 30 daga áður. Eingöngu ódýrasta lyfið og lyf innan við 20% dýrari eru niðurgreidd, óháð styrk lyfsins.
  • Blóðfitulækkandi lyf (C10AA), eingöngu ódýrasta lyfið og lyf innan við 50% dýrari eru niðurgreidd, óháð styrk lyfsins.
  • Læknir getur sótt um niðurgreiðslu fyrir sinn sjúkling reynist það nauðsynlegt vegna sjúkdómsmeðhöndlunar.
  • Hlutur sjúlings í lyfjakostnaði hækkaði að meðaltali um 10-12% vegna breytinga á almennum greiðsluþátttökureglum hjá Sjúkratryggingum Íslands.

Nánari upplýsingar um hvaða lyf eru niðurgreidd hverju sinni í ofangreindum flokkum má nálgast hér á vef Sjúkratryggingastofnun Íslands.