Grundarfjörður, nýtt húsnæði.
Föstudagurinn 16. nóvember 2007
Lyfja opnar í dag í nýju og glæsilegu húsnæði í Grundarfirði að Grundargötu 38. Húsið sem var nýlega stækkað er eins og lítil “Kringla” þeirra Grundfriðinga því auk Lyfju eru í húsinu Samkaup-úrval sem opnar líka í dag, Landsbankinn, veitingaskáli og N1 bensínstöð. Þá munu fleiri bætast við á næstunni.
Lyfja hefur verið í afar litlu og óhentugu húsnæði í Grundarfirði síðustu ár og verður þetta því kærkomin breyting. Lyfja í Grundarfirði er útibú frá Borgarnesi þar sem Þórhildur Scheving Thorsteinsson er lyfsali. Forstöðumaður í Grundarfirði er Elínrós M.Jónsdóttir og aðrir starfsmenn eru Ólöf Hallbergsdóttir og Þórdís Anna Guðmundsdóttir.
Við óskum Grundfirðingum til hamingju með nýju verslunina.