Vísdómsperlan - til sölu í Lyfju

Miðvikudagurinn 23. janúar 2008
 Vikuna 20.-26. janúar stendur yfir átak gegn leghálskrabbameini í Evrópu. Tákn átaksins er Vísdómsperlan og er hún seld í verslunum Lyfju um land allt. 
Það eru Evrópusamtök gegn leghálskrabbameini (ECCA, European Cervical Cancer Association), sem standa fyrir átakinu og er markmiðið að safna 1 milljón undirskrifta íbúa í Evrópu til að þrýsta á Evrópuríki að leggja aukinn metnað og fjármagn í rannsóknir og varnir gegn leghálskrabbameini. Þú getur lagt þitt af mörkum til styrkar vörnum gegn leghálskrabbameini með því að kaupa Vísdómsperluna í næstu Lyfju.
© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.