Tannverndarvika
Þriðjudagurinn 5. febrúar 2008
Í tilefni tannverndarviku viljum við hjá Lyfju minna á mikilvægi tannburstans og tannkremsins. Mikilvægt er að nota tannkrem sem inniheldur flúor. Flúor úr tannkreminu heldur áfram að virka á tennurnar eftir tannburstun þannig að litlir úrkölkunarblettir ná e.t.v. að kalkast aftur.
Því er mikilvægt er að skola ekki, bara skyrpa. Ekkert sakar þótt þú kyngir svolitlu flúortannkremi.
Ef þú vilt skola munninn eftir tannburstun skaltu setja örlítið tannkrem aftur á burstann og bursta létt yfir tennurnar og skyrpa.
Ekki gleyma tannþræðinum! Frekari upplýsingar má finna á síðu Lýðheilsustöðvar: http://lydheilsustod.is/fraedsla/fraedsluefni/tannvernd/
© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.