Læknavaktin, sími 1770
Mánudagurinn 25. febrúar 2008
Frá því að Læknavaktin opnaði á Smáratorgi í desember 1998 hefur verið stöðug aukning á milli ára.
Læknavaktin er opin frá kl 17 til kl 23:30 alla virka daga og síðan er næturvakt allt árið í síma 1770.
Um helgar og á öðrum helgidögum er opið frá kl 9 til kl 23:30.
Ein helsta skýring á vexti starfseminnar er að fólk nýtir sér í meira mæli þægindi þess að geta leitað til læknis eftir sinn vinnutíma en flestar heilsugæslustöðvar loka kl 16 á daginn.
Sveiflum í álagi er mætt með því að bæta inn læknum á vaktirnar eftir þörfum og eins hafa umgangspestar mikil áhrif á álagið.