Hjúkrunarþjónusta í Lyfju
Miðvikudagurinn 16. apríl 2008
Lyfja býður uppá víðtæka hjúkrunarþjónustu í tveimur verslunum sínum, í Lágmúla og á Smáratorgi. Þessi þjónusta felur það í sér að hægt er að leita ráðgjafar um val og notkun á allri almennri hjúkrunarvöru og ýmisskonar stoðvöru.
Í Lyfju í Lágmúla eru afgreiddar hjúkrunarvörur og hjálpartæki sem eru tryggingatengd, þ.e. sem Tryggingastofnun ríkisins greiðir niður að einhverju eða öllu leyti. Sem dæmi má nefna stómavörur, barkastómavörur, þvagleggi, sykursýkisvörur, næringardrykki, þrýstisokkar og sáraumbúðir.
Í þessum tveimur apótekum Lyfju eru auk þess í boði ýmsar heilsumælingar s.s. kólesterol-, blóðfitu,- blóðþrýstings- og blóðsykurs mælingar, sem og mælingar á beinþéttni og útöndun. Niðurstöður liggja yfirleitt fyrir innan nokkurra mínútna og boðið er uppá að farið sé yfir niðurstöðurnar að því loknu.
Æskilegt er að panta tíma fyrirfram, í síma 564 5600 í Smáratorgi, en í Lágmúla er hægt að komast að beint án mikils biðtíma.
© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.