Í dag kynntu Lýðheilsustöð og samstarfsaðilar hluta úr niðurstöðum könnunar sem ber heitið Heilsa og líðan Íslendinga 2007. Þar kemur fram að nýgengi sortuæxla hefur aukist mikið síðustu ár, sérstaklega hjá konum, en sortuæxli er ein tegund húðkrabbameins. Meinið er algengt hjá ungum konum og eldri körlum sennilega vegna þess að konur fara oftar í sólbað og brenna oftar en karlar. Niðurstöður könnunarinnar benda til þess að miðað við þekkingu á eðli húðkrabbameina virðast Íslendingar verða að jafnaði fyrir of mikilli geislun frá sól og ljósabekkjum. Þess vegna er mikilvægt að fólk leiti sér upplýsinga um hvernig best sé að haga sér í sólinni og fræði jafnframt börn sín og aðra um skaðsemi geislunar frá sól og ljósabekkjum.
Á vef Lyfju má finna grein um hvernig best sé að “njóta sólarinnar með umhugsun”.
Gleðilegt sumar!