Fréttir

Tímaritið Lifið heil komið út
Þriðjudagurinn 20. maí 2008
Tímaritið Lifið Heil er komið út og liggur nú frammi í öllum apótekum Lyfju um allt land, viðskiptavinum að kostnaðarlausu. 

Í blaðinu er viðtal við Eurobandið, þau Friðrik Ómar og Regínu Ósk, sem þessa dagana standa í ströngu fyrir Íslands hönd í Eurovision keppninni í Serbíu.  Lyfja hf. óskar þeim góðs gengis í keppninni.