Gömul lyf eiga ekki heima í ruslinu!
Í dag hefst átak sem gera á fólk meðvitaðra um hvers vegna það er nauðsynlegt að farga lyfjum á réttan hátt. Ef við notum ekki lyf af einhverjum ástæðum þá á að skila þeim í apótekið. Af hverju? Hér eru nokkrar ástæður:
Söfnun lyfja innan heimilis eykur hættu á að þeirra sé neytt fyrir slysni.
Neysla á fyrndum lyfjum getur verið áhrifalítil og jafnvel hættuleg.
Ef lyfjum er hent í rusl eða salerni geta þau mengað umhverfið.
Lyf sem læknir ávísaði á aðeins að nota við einkennum sem því var upphaflega ætlað.
Tilraunir til sjálfslækninga með gömlum lyfjum eru varasamar.
Hættulegt er að láta aðra hafa ókláraðan lyfjaskammt, jafnvel þó viðkomandi hafi sömu eða svipuð einkenni og eigandi lyfs.
Öruggast er að eiga aðeins lyf sem ætlunin er að nota og geyma þau í læstum skáp.
Þetta átaksverkefni er liður í rannsóknaverkefni um umfang og ástæður lyfjasóunar sem unnið er af Rannsóknarstofnun um lyfjamál (RUL) í samstarfi við öll apótek landsins og Landspítala-háskólasjúkrahús. Með því að skila inn lyfjum í næsta apótek og taka þátt í örstuttri könnun munt þú aðstoða við rannsókn á magni ónothæfra lyfa á Íslandi. Átakið stendur fram til 27. júní.