Lyfja og Sjósundslandslið Íslands hafa gert með sér samstarfssamning, en landsliðið mun halda til Englands í júlí og freista þess að synda yfir Ermasundið. Sjósundmennirnir eru opinbert landslið Íslands í sjósundi, skipað körlum og konum á aldrinum 24 - 52 ára og á liðið aðild að Sundsambandi Íslands.
Sjósundslandsliðið samanstendur af Benedikt Hjartarsyni, sem mun synda einn yfir sundið, og 8 manna boðsundsveit sem mun synda báðar leiðir. Benedikt gerði atlögu að Ermasundinu í fyrra en þá munaði litlu að hann kæmist yfir, hann synti 50 km á 14 klukkustundum og 55 mínútum. Ef hann kemst yfir sundið í ár verður hann fyrsti Íslendingurinn sem nær þeim árangri að synda yfir Ermasund.
Í tengslum við sundið halda sundmennirnir úti tveimur blogg síðum þar sem ætlunin er að vera með stöðugar sendingar frá sundinu beint í gegnum vefinn. Síður félaganna eru ;
http://ermasund.blogspot.com/ og
http://sjosund.blogspot.com. Sundmennirnir munu synda undirbúningssund frá Reykjavík til Akranes þann 21. júní en þá þegar verða útsendingar á vefnum hafnar auk þess sem greint er vel frá undirbúningi kappanna almennt þangað til að stóri dagurinn rennur upp, þann 10. júlí.
Lyfja óskar sundköppunum góðs gengis !