Árleg bólusetning gegn inflúensu

Laugardagurinn 27. september 2008

Á hverju ári á tímabilinu október til mars gengur inflúensan svokallaða yfir okkur Íslendinga. Nú þegar haustið er komið í allri sinni litadýrð er því kominn tími á árlega bólusetningu hjá þeim sem þess óska. Þeir sem helst ættu að huga að fyrirbyggjandi bólusetningu eru:
    •
Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
    • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, 
       sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
    •
Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
Sóttvarnalæknir mælist til þess að þessir forgangshópar fái bóluefnið sér að kostnaðarlausu.

Lyfja mun bjóða upp á bólusetningu í apótekum sínum. Nánari upplýsingar um stað og stund munu birtast á heimasíðu Lyfju fljótlega.

Allar nánari upplýsingar um bólusetningar fást á Heilsugæslustöðvum landsins. 

Nánari upplýsingar um inflúensu, einkenni, greiningu, meðferð og fleira má finna á heimasíðu Landlæknisembættisins.

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.