Fréttir

Bleika slaufan fæst í Lyfju
Miðvikudagurinn 1. október 2008
Bleika Slaufan er komin í sölu í verslanir Lyfju um land allt.  Bleika Slaufan er fjáröflunarverkefni Krabbameinsfélagsins sem notar allan söluágóða verkefnisins til tækjakaupa til greiningar á brjóstakrabbameini.  Bleika Slaufan er að þessu sinni sérhönnuð af Hendrikku Waage en markmið átaksins er að selja 40.000 slaufur á sölutímabilinu sem er 1.- 15. október.  Lyfja óskar Krabbameinsfélaginu góðs gengis með fjáröflunina og hvetur fólk til að leggja því lið.