ÚT / INN - og Lyfja
Laugardagurinn 8. nóvember 2008
Lyfja er meðal þeirra þjónustufyrirtækja sem taka þátt í sýningu Hlyns Hallssonar, ÚT / INN, sem nú stendur yfir í Listasafni Reykjavíkur. Sýning Hlyns felst í því að færa safnkosti safnsins út á meðal almennings en á sama tíma að varpa nýju ljósi á viðtekna hluti í umhverfi okkar og setja þá í nýtt samhengi innan veggja safnsins. Listaverkin hafa verið sett upp hjá nokkrum þjónustuaðilum í miðbænum, þ.m.t. hjá Lyfju við Laugaveg, en í staðinn lánuðu fyrirtækin hluti til sýningarinnar sem einkennandi eru fyrir starfsemi þeirra.
Áhugaverð sýning sem stendur yfir til 9. janúar. Aðgangur er ókeypis.
© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.