Fréttir

Hvað er rauði þríhyrningurinn?
Þriðjudagurinn 2. desember 2008

Lyfjastofnun hefur gefið út bækling um rauða þríhyrninginn.

Mörg lyf geta dregið úr árvekni og viðbragðsflýti. Þetta skal haft í huga þar sem óskertrar árvekni er þörf, t.d. við akstur, notkun véla og önnur störf sem haft geta hættu í för með sér.

Lyf sem geta haft áhrif á hæfni til aksturs eru ekki öll auðkennd rauðum þríhyrningi.

Nánar um rauða þríhyrninginn á vef Lyfjastofnunar.