Á tímum óvissu og umbrota í íslensku samfélagi er afar mikilvægt að standa vörð um geðheilsu, bæði heilsu okkar sjálfra og þeirra sem í kringum okkur eru. Sérstaklega þurfum við að gæta hagsmuna barna okkar og unglinga. Lyfja mælir með vefsvæðinu
umhuga.is sem er forvarnarverkefni á vegum Landlæknisembættisins undir stjórn verkefnisins
Þjóðar gegn þunglyndi.
Á
umhuga.is getur þú nálgast á einum stað upplýsingar um helstu þætti í uppeldi og aðstæðum barna og unglinga sem hafa áhrif á geðheilsu þeirra á uppvaxtarárunum og þá um leið seinna í lífinu. Þú finnur einnig upplýsingar um þunglyndi og kvíða og upplýsingar um hvert er hægt að leita til að fá aðstoð.
Vefsvæðið er unnið í samstarfi við ýmsar stofnanir sem eiga það sammerkt að starfa að velferð barna og stuðningi eða meðferð þegar þess gerist þörf. Samstarfsaðilarnir ákváðu að vinna saman að gerð fræðslu- og upplýsingavefs um geðheilsu barna og unglinga. Vefurinn er fyrst og fremst ætlaður foreldrum og öðrum uppalendum barna sem glíma við sálrænan eða félagslegan vanda, en einnig almenningi og fagfólki sem vinnur með börnum og ungmennum og loks börnum og unglingum sem sjálf vilja fræðast um þessi efni.