Skoðanakönnun

Eru smokkar of dýrir?




Kjósa
Þú ert hér: Fréttir > Svínainflúensa - upplýsingar
Svínainflúensa - upplýsingar
Þriðjudagurinn 28. apríl 2009

Svínainflúensa er bráð sýking í öndunarvegum svína af völdum inflúensu A veiru. Þessar veirur er einnig að finna í villtum fuglum, fiðurfé, hestum og mönnum. Ný svínainflúensuveira sem nú hefur greinst í mörgum ríkjum Bandaríkjanna og í Mexíkó inniheldur erfðaefni frá svína-, fugla- og mannainflúensu. Veiran berst að því er virðist frá manni til manns og virðist valda skæðum sjúkdómi í Mexíkó en vægum sjúkdómi í Bandaríkjunum. Smit berst ekki með neyslu svínakjöts.

Í Evrópu hefur enn sem komið er greinst eitt tilfelli á Spáni með tengsl við Mexíkó en önnur tilfelli hafa ekki verið staðfest. Ekki er útilokað að veiran geti borist hingað til lands með ferðamönnum. Einkenni svínainflúensu eru skyndilegur hiti, vöðvaverkir og einkenni frá öndunarfærum. Einkenni svínainflúensunnar í Mexíkó virðast vera skæðari en annars staðar og eru að auki í sumum tilfellum með uppköstum og niðurgangi.

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) í samvinnu við sóttvarnastofnanir í Bandaríkjunum (CDC) og Evrópu (ECDC) ásamt framkvæmdastjórn ESB hafa með sér náið samstarf við að fylgjast með og meta stöðuna. Íslendingar fá upplýsingar frá WHO og hafa jafnframt nána samvinnu við ECDC og ESB um vöktun og viðbrögð.

Svínainflúensan sem nú geisar í Bandaríkjunum og Mexíkó er næm fyrir veirulyfjunum Tamiflu (oseltamivir) og Relenza (zanamivir) en ónæm fyrir amantidín-lyfjum. Á Íslandi eru til lyfjabirgðir af Tamiflu og Relenza fyrir þriðjung þjóðarinnar. Tekið skal fram að þau inflúensulyf sem aflað hefur verið til landsins eru virk gegn svínainflúensunni en bóluefni sem veitt getur vörn er enn ekki tiltækt en verið er að reyna að hefja framleiðslu þess.

Frekari upplýsingar er að finna á http://www.influensa.is/ og www.landlaeknir.is/Smitogsottvarnir.

(Texti fenginn af vef Landlæknisembættisins, 28. apríl 2009).

Greinar

Body cream og body lotion, er einhver munur þar á?

Body cream inniheldur meiri næringu en body lotion og er þar af leiðandi fyrir húð sem er mjög þurr og vantar fitu. Það er í flestum tilfellum í krukku sem þýðir það að það er þéttara í sér. Body cream er meiri lúxus vara heldur en body lotion. Body lotion er léttara en body cream, það inniheldur me...

Meira

Spurt og svarað

Er hægt að fá bólgueyðandi lyf án lyfseðils?

SælJá slík lyf getur þú fengið í næstu Lyfju. Ráðfærðu þig við lyfjafræðing um val á slíku lyfi. Dæmi um slíkt er t.d. íbúfen, Naproxen, Magnýl, OtrifluEn varðandi það að versna við að æfa ertu nokkuð að fara of geist af stað? Hefur læknir skoðað þig?kveðja Friðþjófur lyfjafræðingur

Meira

Tenglar

Gingseng

Í hefðbundnum, kínverskum lækningum er ginseng talið heilsubætandi, sefandi og hjartastyrkjandi og jurtin er talin auka vessaframleiðslu líkamans. Hugtökin “heitur“ og “kaldur“ eru eiginleikar sem eru...

Meira