Heilsa og vellíðan

Heilsa og vellíðan > Náttúruvörur > Greinar > Áhrifamáttur hvítlauks: Þjóðtrú eða vísindi
Áhrifamáttur hvítlauks: Þjóðtrú eða vísindi
Hvítlaukurinn er eitt af útbreiddustu og mest notuðu fæðubótarefnum í heiminum í dag. Frá örófi alda hefur hann verið notaður sem náttúrumeðal við hinum ýmsu kvillum. Nægir þar að nefna hjarta- og æðasjúkdóma, ónæmissjúkdóma, sýkingar, lifrarsjúkdóma, krabbamein og geðsjúkdóma. Hvað er það sem fær milljónir manna til að innbyrða þetta lyktar- og bragðmikla “töfralyf” á hverjum degi? Er það þjóðtrúin eða eru það einfaldlega áhrifin?

Rannsóknir á áhrifum hvítlauksinntöku hafa aukist gífurlega undanfarna tvo áratugi. Vegna þess hve markaður fæðubótarefna hefur vaxið gífurlega og sala hvítlauks aukist hafa framleiðendur getað lagt meira fé til rannsókna á vörum sínum. Eins hafa vísindamenn og lyfjafyrirtæki um allan heim leitað að efnum í hvítlauknum til læknisfræðilegra nota.

Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það að fyrstu rannsóknir sýndu takmarkað gagn af inntöku hvítlauks. Það var ekki fyrr en framleiðandi nokkur þróaði einstaka aðferð til að vinna hvítlaukinn, að inntaka hans fór að sýna jákvæð áhrif á mannslíkamann. Aðferðin sem beitt er, og tekur um 20 mánuði, kallast kaldþroskun (Aged Garlic Extract) og hvítlauksafurðin markaðssett undir heitinu Kyolic.

Fjölmargar rannsóknir hafa beinst að verndandi áhrifum hvítlauks gegn hjarta- og æðasjúkdómum. Athyglisverðustu niðurstöðurnar eru einkum blóðfitulækkandi áhrif kaldþroskuðu hvítlauksafurðarinnar. Vandaðar rannsóknir sem birst hafa í virtum vísindatímaritum hafa sýnt fram á 12-31% lækkun á kólesteróli í blóði, sérstaklega LDL-kólesteróli. Rannsóknir hafa ennfremur sýnt fram á lækkun þríglýseríða í blóði um 10-19%, blóðþrýstingslækkun um 6-9%, blóðþynnandi áhrif og bætta blóðmyndun sjúklinga sem þjást af blóðleysi.

Rannsóknir hafa ennfremur gefið vísbendingar um verndandi áhrif hvítlauks gegn krabbameini. Ákveðið efni í hvítlauksafurðinni, S-allylmercaptocysteine (SAMC), sem hvorki finnst í ferskum né soðnum hvítlauk heldur einungis í kaldþroskuðum hvítlauk, getur heft myndun krabbameinsvaldandi efna, hindrað tengingu þeirra við DNA erfðaefni okkar, örvað lífhvata sem afeitra þessi efni og hindrað vöxt krabbameinsfrumna.

Á síðustu ráðstefnu Bandarísku krabbameinsrannsóknastofnunarinnar (AICR) um náttúruefni kynnti hópur vísindamanna faraldsfræðilega rannsókn sem gaf til kynna að inntaka hvítlauks getur minnkað líkur á ristilkrabbameini um 35%. Aðrar rannsóknir sem kynntar voru sýndu fram á 25-50% minni líkur á magakrabbameini hjá þeim sem neyttu hvítlauks að staðaldri samanborið við þá sem ekki neyttu hans.

Í dag er hvítlauksafurðin eitt mest selda og jafnframt langmest rannsakaða fæðubótarefni í heiminum. Viðamiklar rannsóknir hafa sannað gagnsemi hvítlauksins og aukið virðingu hans, úr því að vera notaður sem vampírufæla í ævintýrum í það að vera gagnlegt hjálpartæki ásamt öðrum læknisfræðilegum og heilsufarslegum aðferðum til varnar ýmsum sjúkdómum. Þessvegna hefur kaldþroskaði hvítlaukurinn verið að vinna sér inn þá viðurkenningu læknastéttarinnar sem hann á skilið.

Bjarni Bærings, lyfjafræðingur.


  • Greinar
  • Spurt og svarað
Föstudagurinn 10. agúst 2007
- Almennt um náttúruefni

Lækningajurtir og önnur náttúrumeðul eru flokkuð sem "fæðubótarefni" og falla því undir annan hatt en bæði lyfseðilskyld lyf og lyf sem eru seld án lyfseðils. Þeim fjölgar sífellt sem nota þessi lyf í lækningaskyni og því þurfa bæði læknar og lyfjafræðingar að kunna skil á þeim. Rannsóknir sem voru gerðar á vegum ...

Meira