- Hvers ber að gæta með náttúrulyf

 

Frá bandaríska lyfjafræðingafélaginu:

Hvers ber að gæta
- áður en náttúruefni og náttúrulyf eru notuð

Margir virðast gera ráð fyrir því að náttúruefni og lækningajurtir geti ekki gert neitt nema gott. Það er þó ekki algilt og í raun má ganga út frá því að öll efni sem hafa einhverja verkun geti jafnframt haft aukaverkanir.


Hvað þarf að hafa í huga?
Sum heilræðanna sem koma fram hér eiga í meginatriðum við um allar lækningajurtir og náttúrulyf. Við lestur þeirra áttar þú þig að líkindum á því að þau snúast, þegar allt kemur til alls, fyrst og fremst um heilbrigða skynsemi. Þegar þú íhugar til dæmis að taka eitthvert nýtt efni veltur á miklu að kanna hvaðan upplýsingarnar sem þú færð eru komnar. Eru þær frá sölumanninum, úr auglýsingu eða bók, úr grein í víðlesnu blaði eða tímariti eða kynningarfulltrúa framleiðandans? Eru upplýsingarnar gefnar í von um gróða? Eða gefur einhver góðhjartaður og velviljaður maður þér þær til þess að bæta heilsu þína? Heilbrigð blanda af gagnrýni, bæði hvað varðar notkun náttúrulyfja og annað, getur ekki aðeins komið í veg fyrir að þú verðir fyrir skaða (bæði á heilsu þinni og fjárhag) heldur getur slík blanda einnig gert þér kleift að færa þér í nyt kosti fjölmargra jurta- og náttúrulyfja sem fyrri kynslóðir reiddu sig á og æ meiri vitneskja liggur fyrir um.

Gerðu þér far um eftirfarandi:

Vertu gagnrýninn á allar upplýsingar

  • Hvað er á bak við þær? Góðmennska og velvild? Gróðavon? Persónulegur áhugi eða söluherferð? Miðlun þekkingar?
  • Hvaðan eru þær komnar? Byggjast þær á reynslu einhvers, eru þær niðurstöður úr dýratilraunum, eða óstaðfestar og jafnvel óbirtar niðurstöður tilrauna sem hafa farið fram á mönnum?
  • Frá hverjum eru upplýsingarnar komnar? Hafa þeir traust meðmæli?
  • Einkennast þær af skrumi og sölumennsku? Koma fram yfirlýsingar um:

-að um sé að ræða undralyf eða allra meina bót, aðferð sem megrar án nokkurrar fyrirhafnar, eða einfalt læknisráð gegn erfiðum sjúkdómum á borð við krabbamein?
-að þetta séu einu áreiðanlegu heimildirnar og upplýsingarnar og þær séu liður í herferð sem getur orðið til þess að bjarga þér og öðrum heiðarlegum og grandalausum mönnum?
-að upp hafi komist um samsæri heilbrigðisyfirvalda að halda upplýsingum leyndum fyrir almenningi eða að banna eigi lækningajurtir og önnur náttúrulyf?
-að staðfest hafi verið að náttúrulyf geti eingöngu læknað og að þau séu aldrei skaðleg?
-að Vesturlandabúar borði einhæfan og lélegan mat og þurfi af þeim ástæðum, svo og vegna streitu, hreyfingarleysis, sjúkdóma og annarra þátta, að taka vítamín og steinefni til þess að bæta sér það upp?

Veldu eingöngu gæðavörur

  • Kauptu eingöngu þurrkaðar jurtir sem virðast ferskar, hreinar og lausar við hvers kyns meindýr og óværu. Geymdu þær í lokuðum ílátum, helst úr gleri, og á svölum stað þar sem sól nær ekki til.
  • Kauptu eingöngu vörur af traustum framleiðendum. Í merkingu ætti að koma fram latneskt heiti jurtarinnar og þar eiga helstu innihaldsefni að vera tilgreind nákvæmlega, svo og framleiðslulotunúmer og -dagsetning ásamt fyrningardagsetningu. Einnig á að koma fram nafn og heimilisfang framleiðanda og símanúmer sem hægt er að hringja í ef spurningar vakna.
  • Kauptu staðlaða framleiðsluvöru (þykkni, kjarna o.s.frv.) ef þess er kostur. Það veitir þér nokkra tryggingu fyrir því að virka innihaldsefnið sé í því magni sem upp er gefið. Vertu á varðbergi ef engar upplýsingar um innihaldsefni er að finna á vörunni.
  • Gættu þess vel að þú þekkir plöntuna örugglega ef þú tínir hana á eigin spýtur úti í náttúrunni. Hér eru hvorki veittar upplýsingar um tínslu plantna né tilreiðslu eða vinnslu þeirra.


Láttu lækni vita um hvers kyns aukaverkanir

  • Ef þú finnur fyrir einhvers konar aukaverkunum af náttúrulyfi skaltu ráðgast við heimilislækninn eða lyfjafræðing þegar í stað.

 
Varastu eftirfarandi:
Taktu aldrei óþarfa áhættu

  • Þungaðar konur, eða konur með barn á brjósti, og ungbörn (einkum kornabörn) ættu ekki að öllu jöfnu að taka jurta- og náttúrulyf, og eru flest jurtate þar með talin. Börn sem eru yngri en tveggja ára eru með lítt þroskaða lifur og hún ræður ekki við að eyða mörgum efnum sem geta haft einhverja eiturverkun ef þau safnast fyrir í of miklum mæli. Í ljósi þess hve lítil vitneskja er um hugsanlegan skaða er augljóst að áhættan vegur þyngra en hugsanlegur ávinningur af töku lyfjanna. Fólk sem er komið á efri ár og er með skerta lifrarstarfsemi, hjarta- og æðakvilla eða aðra alvarlega sjúkdóma ætti einnig að láta flest jurta- og náttúrulyf eiga sig.


Víst getur orðið of mikið af því góða

  • Þegar þú ferð að taka náttúrulyf skaltu forðast þá hugsanlegu freistingu að taka meira af viðkomandi lyfi en leiðbeiningar mæla fyrir um. Hugmyndin "því meira þeim mun betra" byggist á ranghugmyndum, er varhugaverð og gæti kallað fram eiturverkun. Forðastu að taka náttúrulyf marga daga eða vikur án hlés því að það getur boðið heim þeirri hættu að eiturefni safnist fyrir í líkamanum.

Ekki meðhöndla á eigin spýtur alvarlegan sjúkdóm eða sjúkdómseinkenni

  • Vel má hugsa sér að lækna kvef, höfuðverk eða kláða með náttúrulyfi, en þegar um er að ræða alvarlega sjúkdóma á borð við sykursýki, háþrýsting, krabbamein, alnæmi og hjartasjúkdóma verða læknar að koma til og stjórna meðferðinni. Það væri heimskulegt að ætla sér að vinna bug á slíkum sjúkdómum upp á eigin spýtur. Það sama á við um einkenni sem gætu verið vísbending um sjúkleika sem krefst tafarlausrar og öflugrar meðferðar. Slík einkenni gætu til dæmis verið sviði eða sársauki við þvaglát eða bjúgur og þroti vegna vökvasöfnunar. Ræddu við lækni þinn ef þú hefur áhuga á að nota líka náttúrulyf til þess að styrkja heilbrigði þína.

Ekki skipta um lyf að eigin frumkvæði

  • Sum náttúrulyf innihalda öflug efni sem geta haft áhrif á uppsog eða verkun annarra lyfja sem þú tekur. Hið sama á við um sum matvæli. Sem dæmi má nefna að það getur skapað hættu ef tekin er reglulega jurt sem vitað er að hafi áhrif á verkun mónóamínoxídasahemils og síðan er neytt rauðvíns eða osts sem inniheldur týramín. Ræddu við heimilislækninn (sérfræðinginn) áður en þú ferð að nota náttúrulyf þér til heilsubótar.

Ekki leiða hjá þér aukaverkanir náttúrulyfja

  • Hættu þegar í stað að taka náttúrulyf ef það kallar fram aukaverkanir af einhverju tagi, hvort sem það er ólga í maga, útbrot í húð eða höfuðverkur. Segðu lækninum frá þeim.
© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.