Járn er snefilefni og nauðsynlegt líkamanum. Járn er í blóðinu í próteinsambandi sem kallast hemóglóbín og það er líka í öllum rauðum blóðkornum. Hemóglóbín flytur súrefni til vefja líkamans og koldíoxíð frá frumum líkamans.
Heiti Járn Iron Ferrous sulphate
Uppspretta Innmatur svo sem lifur og hjörtu, rautt magurt kjöt, haframjöl, eggjarauður, ostrur og þurrkaðir ávextir.
Verkun - Nauðsynlegt fyrir myndun hemóglóbíns. - Nauðsynlegt fyrir myndun bandvefs í líkamanum.
Notkun - verkun - Við blóðleysi vegna járnskorts sem gæti stafað af langvarandi blóðmissi, aukinni þörf á járni, eins og við þungun, og ónógri neyslu á járni í fæðu. - Styrkir ónæmiskerfið.
Ráðlagðir dagskammtar
| Ungabörn 0-6 mán |
5 mg |
| Ungabörn 6-12 mán |
8 mg |
| Börn 1-6 ára |
8 mg |
| Börn 7-10 ára |
10 mg |
| Karlar 11-18 ára |
12 mg |
| Karlar >18 ára |
10 mg |
| Konur 11-60 ára |
15 mg |
| Konur >60 ára |
10 mg |
| Konur á meðgöngu |
15 mg |
| Konur með barn á brjósti |
15 mg |
Margar konur geta ekki svarað aukinni járnþörf á meðgöngu í matarræði og er því ráðlagt að taka aukalega 30-60mg af járni á dag. Þörf mjólkandi mæðra eykst ekki verulega fyrir járn en gott þykir að taka járn í nokkurn tíma eftir barnsburð.
Járnskortur - Veldur blóðleysi/blóðskorti sem lýsir sér í þreytu og slappleika. - Þeir sem eiga á hættu að fá járnskort eru ungabörn og börn yngri en tveggja ára, unglingsstúlkur, þungaðar konur, konur fyrir tíðahvörf og aldraðir. Konur í íþróttum sem byggjast á miklu þoli, eiga líka á hættu að fá járnskort.
Járneitrun - Einkenni eitrunar koma einkum fram í magaverkjum, niðurgangi og blóði lituðum uppköstum, þá getur járn einnig horfið úr vefjum. - Járneitrun getur leitt til truflana í starfsemi hjarta og lifur. - 2-10g af járni geta valdið banvænni eitrun í börnum sé þess neytt í einu.
Aukaverkanir Hægðatregða, svartar hægðir, niðurgangur, brjóstsviði, ógleði og magaverkir.
Milliverkanir - C-vítamín eykur frásog járns frá þörmum, þess vegna er gott að taka C-vítamín með járni. - Sýrubindandi lyf geta dregið úr frásogi járns, þess vegna þurfa að líða 1-2 klst. milli inntöku járns og sýrubindandi lyfja. - Asetýlsalisýlsýra (Magnýl®) getur haft áhrif á frásog járns. - Járn getur bundist við tetrasýklínsambönd (sýklalyf) og þannig hamið frásog þeirra. 1-2 klst. verða því að líða milli inntöku járns og tetrasýklínsambanda.
Frábendingar Engar þekktar.
Heimildir R. S. Hillman. Hematopoietic agents. Goodman & Gilman´s The pharmacological basis of therapeutics 9th edition. 1996 McGraw-Hill, New York. Bls. 1317-1325, 1549.
H.P. Rang, M.M. Dale og J.M. Ritter. Pharmacology 4th edition. 1999 Churchill Livingstone, Edinburgh. Bls. 329-331.
H. R. Jóhannesson, S. Ó. Ólafsson. Bætiefnabókin, Handbók um vítamín, steinefni og fæðubótarefni. 1995 Mál og menning, Reykjavík. Bls. 70-73.
Anna Elín Kjartansdóttir, Valdís Beck og Þóra Jónsdóttir, lyfjafræðingar