Heilsa og vellíðan

Heilsa og vellíðan > Steinefni og snefilefni > Greinar > Kalk
Kalk
Kalk er uppistöðuefni beina og tanna, en 99% af kalki líkamans er að finna í beinum og tönnum.

Heiti Kalk Calcium

Uppspretta Mjólk, mjólkurvörur og grænt grænmeti.

Verkun - Kalk er nauðsynlegt fyrir eðlilega starfsemi taugakerfisins, samdráttarhæfni vöðva og eðlilegan blóðþrýsting. - Kalk er uppistöðuefni beina og tanna.

Notkun - verkun - Við kalkskorti og beinþynningu. - Til að fyrirbyggja beinþynningu, t.d. hjá konum eftir tíðahvörf.

Ráðlagðir dagskammtar

Ungabörn 0-6 mán    360 mg
Ungabörn 6-12 mán 540 mg
Börn 1-10 ára 800 mg
Karlar 11-18 ára 1200 mg
Karlar >18 ára 800 mg
Konur 11-18 ára 1200 mg
Konur >18 ára 800 mg
Konur á meðgöngu 1200 mg
Konur með barn á brjósti 1200 mg

Frásog kalks úr meltingarvegi minnkar með aldrinum og eldra fólk dregur líka oft úr neyslu kalkríkrar fæðu. Það er því eldra fólki þýðingarmikið að taka daglega inn kalk. Fólk með ofnæmi fyrir mjólkursykri þarf líka að gæta þess að neyta nægilegs magns af kalkviðbæti.

Kalkskortur - Kalkskortur getur leitt til óeðlilegs beinvaxtar hjá börnum. - Hjá fullorðnum leiðir kalkskortur til beinþynningar.

Kalkeitrun Umfram kalk í líkamanum skilst yfirleitt út með þvagi en sé mikils kalks neytt getur orðið kristallamyndun í þvagi (öðru nafni nýrnasteinar).

Aukaverkanir Engar þekktar ef farið er eftir ráðlögðum dagskömmtum.

Milliverkanir Skortur á D-vítamíni getur leitt til skorts á kalki af því að D-vítamín eykur nýtingu kalks í líkamanum, sömuleiðis getur yfirmagn D-vítamíns í líkamanum valdið kalkeitrun.

Frábendingar Engar þekktar.

Heimildir H. R. Jóhannesson, S. Ó. Ólafsson. Bætiefnabókin, Handbók um vítamín, steinefni og fæðubótarefni. 1995 Mál og menning, Reykjavík. Bls. 74-75.

R. Marcus. Agents affecting calcification and bone turnover. Goodman & Gilman´s The pharmacological basis of therapeutics 9th edition. 1996 McGraw-Hill, New York. Bls. 1519-1524.

http://wvda.org/nutrientl

Anna Elín Kjartansdóttir, Valdís Beck og Þóra Jónsdóttir, lyfjafræðingar



  • Greinar
  • Spurt og svarað
Föstudagurinn 10. agúst 2007
- Almennt

Steinefni eru ólífræn efni og nauðsynleg mönnum og dýrum. Þau verða að berast líkamanum á einn eða annan hátt frá umhverfinu, eins og t.d. með fæðu. Steinefni gegna mikilvægu hlutverki í margþættri líkamsstarfsemi. Nefna mætti að þau eru byggingarefni beina og tanna, taka þátt í samdrætti vöðva, þýðingarmikil í blóðmy...

Meira
Fleiri greinar Meira