Skoðanakönnun

Eru smokkar of dýrir?




Kjósa
Þú ert hér: Heilsa og vellíðan > Steinefni og snefilefni > Greinar > Selen
Prentvæn útgáfa
Selen

Áður fyrr var talið að selen væri stórhættulegt og eitrað efni sem ylli krabbameini. Núna er vitað að selen verndar líkamann. Selen finnst í öllum vefjum líkamans, en er mest í nýrum, lifur og kirtlum.

Heiti Selen

Uppspretta Fiskur, korn, sellerí, spergilkál, sveppir, eggjarauða og hvítlaukur.

Verkun - Sindurvari og þar af leiðandi vörn gegn krabbameini og ýmsum hjarta- og æðasjúkdómum. - Rannsóknir á virkni og öryggi selens stangast á eða að þær eru ekki nægilega miklar til þess að hægt sé að draga ályktanir af niðurstöðum þeirra.

Notkun - verkun - Sindurvari. - Skapbætandi. - Við ýmsum húðvandamálum eins og bólum og hrukkum. - Til að örva ónæmiskerfið. - Í hársápu við flösu.

Ungabörn 0-6 mán 10 mcg
Ungabörn 6-12 mán 15 mcg
Börn 1-3 ára 20 mcg
 Börn 4-6 ára 25 mcg
Börn 7-10 ára 30 mcg
Karlar 11-14 ára 40 mcg
Karlar >14 ára 50 mcg
Konur >10 ára 40 mcg
Konur á meðgöngu 55 mcg
Konur með barn á brjósti 55 mg

Selenskortur Helstu einkenni selenskorts eru hárlos, vöðvaverkir og truflanir í æðakerfi. Alvarlegur skortur eykur hættu á lifrarsjúkdómum, hjartasjúkdómum og krabbameini.

Seleneitrun Eiturverkanir selens eru fátíðar en þær helstu eru: - Sterk lykt frá vitum, - svartar neglur, - járnbragð í munni og - ógleði.

Aukaverkanir Engar þekktar ef farið er eftir ráðlögðum dagskömmtum.

Milliverkanir Stórir skammtar af C-vítamíni draga úr frásogi og nýtingu á seleni.

Frábendingar Engar þekktar.

Heimildir H. R. Jóhannesson, S. Ó. Ólafsson. Bætiefnabókin, Handbók um vítamín, steinefni og fæðubótarefni. 1995 Mál og menning, Reykjavík. 82-83.

R. Marcus, A. M. Coulson. The Vitamins, Introduction. Goodman & Gilman´s The pharmacological basis of therapeutics 9th edition. 1996 McGraw-Hill, New York. Bls. 1549.

A. Peirce. Practical Guide to Natural Medicines. 1999, A Stonesong Press Book William Morrow and Company INC, New York. Bls. 586-588.

Anna Elín Kjartansdóttir, Valdís Beck og Þóra Jónsdóttir, lyfjafræðingar

Spurt og svarað

Mjólkurþistill og lifrarstarfsemi

Gagnsemi mjólkurþistils fyrir lifrina er nokkuð umdeild. Flest bendir til þess að innihaldsefni þessarar plöntu geri lifrinni gott en ekki liggja ennþá fyrir neinar haldbærar rannsóknir sem styðja þær kenningar eða sanna þær til fullnustu.Klínískar prófanir hafa þó sýnt fram á að innihaldsefni mjó...

Meira