A-vítamín tilheyrir hópi fituleysanlegra vítamína og skilst því ekki út úr líkamanum með þvagi heldur safnast yfirmagn þess fyrir, er lengur að skiljast út úr líkamanum sem aftur leiðir til aukinnar hættu á eitrun.
Heiti A-vítamín Retinóíðar Beta-karótín
Uppspretta Lifur, mjólkurvörur, fiskur, lýsi (unnið úr fiskilifur), gult og grænt grænmeti, s.s. spínat og gulrætur, og ávextir.
Verkun - Stuðlar að eðlilegri sjón, er nauðsynlegt fyrir nethimnu augans. - Gott við ýmsum húðsjúkdómum, svo sem bólum, psoriasis, ertingu og sýkingum (lyfseðilsskyld lyf), stuðlar líka að heilbrigði húðar og slímhúðar. - Viðheldur eðlilegum vexti beina.
Notkun - verkun - Við A-vítamínskorti. - Þegar líkaminn hefur aukna þörf fyrir A-vítamín, eins og hjá þunguðum konum, mjólkandi mæðrum og ungabörnum. - Gefið ungabörnum til að fyrirbyggja skort. Þegar barnið fer að neyta fjölbreyttari fæðu dregur úr þörfinni fyrir A-vítamín. - Styrkir ónæmiskerfið og hraðar græðslu sára. - Dregur úr hættu á myndun ákveðinna tegunda krabbameins í slímhúðum öndunarfæra og meltingarvegs.
Ráðlagðir dagskammtar
| Ungabörn <1 árs |
400 mcg |
| Börn 1-3 ára |
400 mcg |
| Börn 4-6 ára |
500 mcg |
| Börn 7-10 ára |
700 mcg |
| Karlar >10 ára |
900 mcg |
| Konur >10 ára |
800 mcg |
| Konur á meðgöngu |
800 mcg |
| Konur með barn á brjósti |
1200 mcg |
A-vítamín skortur Skortur á vítamíninu kemur helst fram hjá einstaklingum með langvarandi sjúkdóma því að við slíkar aðstæður skerðist upptaka fitu frá meltingavegi. Helsta einkenni A-vítamínskorts er náttblinda. Önnur einkenni eru augnþurrkur, húðskemmdir og sýkingar.
A-vítamín eitrun - Eitrun er sjaldgæf hjá fullorðnum einstaklingum sem taka minna en 30mg á dag en hefur gætt hjá einstaklingum sem neyttu 10mg á dag í 6 mánuði. - Í ungabörnum hefur eitrun komið fram eftir neyslu 7,5-15mg í 30 daga. - Hætta eykst á fæðingargöllum taki barnshafandi konur inn stærri skammta af A-vítamíni en ráðlagðir dagskammtar segja til um. - Einkenni eitrunar: Þurr og flagnandi húð, hárlos, kláði og þroti í húð og slímhúð, sprungnar varir, verkur í beinum, höfuðverkur, þyngdartap og fleira.
Aukaverkanir Óþekktar, nema um ofskömmtun sé að ræða.
Milliverkanir - Sýrubindandi lyf, laxerolía og paraffínolía geta dregið úr frásogi A-vítamíns í þörmum. - Xenical, Questran og önnur lyf, sem auka útskilnað fitu úr líkamanum, geta um leið tekið fituleysanleg vítamín með sér sem aftur veldur skorti á þeim í líkamanum.
Frábendingar Engar þekktar.
Heimildir R. Marcus, A.M. Coulston, Fat-soluble vitamins. Goodman & Gilman´s The pharmacological basis of therapeutics 9th edition. 1996 McGraw-Hill, New York. Bls. 1573-1582, 1549.
H. R. Jóhannesson, S. Ó. Ólafsson. Bætiefnabókin, Handbók um vítamín, steinefni og fæðubótarefni. 1995 Mál og menning, Reykjavík. Bls. 46-50.
http://www.herbaladvisor.comAnna Elín Kjartansdóttir, Valdís Beck og Þóra Jónsdóttir, lyfjafræðingar