Heiti B6-vítamín Pýridoxín
Uppspretta Fiskur, kjöt, kjúklingar, heilhveiti, egg og gulrætur. Pýridoxín getur tapast við matreiðslu.
Verkun Pýridoxín tekur þátt í myndun og umbroti þessara efna í líkamanum: Kolvetna, fitu, amínósýru, kjarnsýru, próteina og hemóglóbíns.
Notkun - verkun - Við pýridoxín skorti og í blöndu með öðrum B-vítamínum við almennum B-vítamín skorti. - Við fjöltaugabólgu. - Talið draga úr einkennum fyrirtíðarspennu. - Krampastillandi.
Ráðlagðir dagskammtar
| Ungabörn 0-6 mán |
300 mcg |
| Ungabörn 6-12 mán |
500 mcg |
| Börn 1-3 ára |
800 mcg |
| Börn 4-6 ára |
900 mcg |
| Börn 7-10 ára |
1,1 mg |
| Karlar 11-14 ára |
1,3 mg |
| Karlar 15-60 ára |
1,5 mg |
| Karlar 61-75 ára |
1,4 mg |
| Karlar >75ára |
1,2 mg |
| Konur 11-14 ára |
1,1 mg |
| Konur 15-60 ára |
1,2 mg |
| Konur >60 ára |
1,1 mg |
| Konur á meðgöngu |
1,4 mg |
| Konur með barn á brjósti |
1,5 mg |
B6-vítamín skortur Einkenni pýridoxín skorts geta lýst sér í sprungnum munnvikum, húð flagnar kringum nef og augu, krampakenndum flogum, geðdeyfð, uppköstum, húðbólgum, blóðskorti, taugabólgum og nýrnasteinum. Þungaðar konur eiga á hættu að þjást af pýridoxín skorti, vítamínið er nauðsynlegt fóstrinu og berst til þess frá móður. Misnotkun áfengis getur leitt til skorts á pýridoxíni.
B6-vítamín eitrun Taugaskemmdir geta komið fram eftir töku 200mg/dag eða meira að staðaldri, og 2000mg/dag í skamman tíma. Taugaskemmdir geta lýst sér í dofa í fótum og höndum. Einkennin ganga yfirleitt til baka ef dregið er úr inntöku pýridoxíns en varanlegar taugaskemmdir eftir stóra skammta eru þó vel þekktar.
Aukaverkanir Óþekktar nema um ofskömmtun sé að ræða.
Milliverkanir Ýmis lyf geta valdið skorti á pýridoxín, t.d. ísóníazíð (berklalyf), hýdralazín, getnaðarvarnartöflur, penisillamín, neómýcín og rífampicín. Pýridoxín minnkar virkni L-dópa í Parkinson´s meðferð.
Frábendingar Parkinson´s sjúklingar sem nota L-dópa í lyfjameðferð ættu ekki að taka inn pýridoxín.
Heimildir R. Marcus, A.M. Coulston. Water-soluble vitamins. Goodman & Gilman´s The pharmacological basis of therapeutics 9th edition. 1996 McGraw-Hill, New York. Bls. 1561-1563, 1549.
H. R. Jóhannesson, S. Ó. Ólafsson. Bætiefnabókin, Handbók um vítamín, steinefni og fæðubótarefni. 1995 Mál og menning, Reykjavík. Bls. 46-50.
http://www.herbaladvisor.comAnna Elín Kjartansdóttir, Valdís Beck og Þóra Jónsdóttir, lyfjafræðingar