
Vítamín eru skilgreind sem lífræn efni er líkaminn þarfnast í litlu
mæli og verður að nálgast þau frá umhverfinu af því að vítamínin verða
ekki til í líkamanum eða þá að myndun þeirra þar er ekki nægjanleg til
að viðhalda heilsu manna. Aðaluppspretta vítamína er að finna í fæðunni
með einni undantekningu; D-vítamín verður til í mannslíkamanum fyrir
tilstuðlan sólarljóss (útfjólublárra geisla).