Getnaðarvarnartöflur - "pillan"

Þóra Jónsdóttir, lyfjafræðingur

Um þrjár megingerðir er ræða: - Einfasa getnaðarvörn - Tvífasa getnaðarvörn - Þrífasa getnaðarvörn.

Þessar töflur fást venjulega sem 3*21 daga skammtur. Ein tafla er tekin daglega í 21 dag, almennt er byrjað á fyrsta degi tíðablæðinga, og síðan er gert 7 daga hlé. Sumar gerðir er einnig hægt að fá sem 3*28 daga skammt og innihalda þá síðustu 7 töflurnar óvirkt efni. Þegar um er að ræða 28 daga skammt þá er ekkert hlé tekið. Tilgangurinn með 28 taflna pakkningunni er sá að auðvelda þeim konum, sem gjarnan gleyma að taka inn töflu, að halda reglu á inntöku taflnanna.

Einfasa getnaðarvörn inniheldur sama styrk af estrógen og prógestín í hverri töflu. Tvífasa getnaðarvarnartöflurnar hafa tvær gerðir taflna sem innihalda mismunandi hlutföll af estrógeni og prógestíni en þrífasa getnaðarvarnartöflurnar hafa aftur á móti þrjár mismunandi hormónasamsetningar. Með þessu móti er hægt að minnka hormónamagn taflnanna næstum að því magni sem líkaminn sjálfur myndar á tíðarhringnum.

Flestar getnaðarvarnartöflurnar innihalda um 20-50 microgrömm af estrógeni. Algengast er að þær innihaldi um 30-35 microgrömm. Þær töflur sem innihalda minna en 35 microgrömm kallast lágskammta getnaðarvarnir. Magn prógestína er breytilegra en flestar gerðir innihalda um 1 mg eða minna.

Til athugunar: Áður en farið er að taka getnaðarvarnarlyf er nauðsynlegt að framkvæma ítarlega líkamsskoðun (t.d. skoðun á brjóstum og frumuskoðun úr leghálsi) og kanna sjúkrasögu fjölskyldunnar. Útiloka þarf truflanir á blóðstorknun og útiloka þarf þungun.

Til öryggis er best að endurtaka skoðun á 6-12 mánaða fresti meðan getnaðarvarnarlyf er notað.

Helstu aukaverkanir getnaðarvarnarlyfja: Getnaðarvarnarlyf þolast almennt mjög vel. Helstu aukaverkanir geta verið t.d. höfuðverkur, ógleði, þyngdaraukning og mögulega breytingar á kynhvöt.

Um aukaverkanir hverrar tegundar fyrir sig, sjá Lyfjubók.

Hvað getur haft áhrif á öryggi getnaðarvarnarlyfsins:

1. Töflurnar teknar óreglulega og stakar töflur gleymast.

2. Uppköst og niðurgangur innan þriggja stunda frá töflutöku. Almennt er ráðlagt að taka eina töflu til viðbótar innan 12 klst.

3. Ýmis lyf geta haft áhrif á öryggi getnaðarvarnartaflna. T.d. flogaveikilyf, ákveðin svefnlyf og svo nokkur sýklalyf t.d. Amoxicillin. Konur sem eru á skammvinnri meðferð með breiðvirkum sýklalyfjum ættu því að nota aðrar getnaðarvarnir samtímis töku getnaðarvarnarlyfsins meðan á meðferð stendur og í 7 daga eftir að henni lýkur. Ef töfluspjaldið klárast áður en þessum 7 dögum lýkur þá skal byrja á næsta spjaldi eins og um frestun tíðablæðinga væri að ræða.

Cerazette

Innihaldsefni: Desogestrelum 75 microg.

Umfjöllun: Cerazette er gestagentafla sem inniheldur prógestagenið desógestrel. Cerazette hentar best konum sem eru með barn á brjósti og konum sem geta ekki eða vilja ekki nota östrógen.

Getnaðarvörn lyfsins byggist fyrst og fremst á því að komið er í veg fyrir egglos. Jafnframt hafa hormónin áhrif á slímmyndun í leghálsinum þannig að sæðisfrumur komast síður upp í legið og frjógvað egg nær síður festu í slímhúð legsins.

Notkun: Hvert spjald inniheldur 28 töflur. Fyrsta taflan er tekin á fyrsta degi tíðablæðinga (má vera á 2.-5. degi). Tekin er sú tafla sem svarar til viðeigandi vikudags. Síðan á að taka samfellt 1 töflu daglega án tillits til hugsanlegra blæðinga. Töflurnar á að taka á sama tíma sólarhringsins þannig að alltaf líði 24 klst. milli töku tveggja taflna. Þegar spjaldið klárast er strax byrjað á næsta spjaldi (ekkert töfluhlé).

Ef verið er að skipta yfir í Cerazette frá annarri hormónagetnaðarvörn þá er fyrsta taflan tekin strax næsta dag eftir að hitt töfluspjaldið klárast eða getnaðarvarnarhringur eða –plástur er fjarlægður, án þess að hlé sé gert.

Hvenær veitir Cerazette öryggi: Æskilegt er að önnur getnaðarvörn sé notuð samhliða inntöku taflnanna fyrstu 7 dagana.

Ef tafla gleymist: Getnaðarvörn getur minnkað ef meira en 36 klst. líða milli töku tveggja taflna. Ef innan við 12 klst. hafa liðið frá því átti að taka töflu, skal taka töfluna sem gleymdist, strax og í ljós kemur að það hefur gleymst og næstu töflu á þeim tíma sem ráð var fyrir gert. Ef taflan sem gleymdist er tekin meira en 12 klst. of seint skal jafnframt nota aðra getnaðarvörn samtímis næstu 7 daga. Ef gleymist að taka töflu í fyrstu vikunni sem lyfið er notað og konan hefur haft samfarir í vikunni áður en töflutaka gleymdist skal hafa mögulega þungun í huga.

Algengasta aukaverkun Cerazette er blæðingaróregla. Allt að 50% kvenna verða fyrir einhvers konar blæðingartruflun. Hjá sumum konum geta blæðingar orðið tíðari en hjá öðrum verða þær sjaldnar eða hætta jafnvel alveg. Meðan kona hefur barn á brjósti eru meiri líkur á því að blæðingar verði ekki. 

Frestun tíðablæðinga eða stjórnun á tíðahring er ekki möguleg við notkun Cerazette.

Diane Mite

Innihaldsefni: Cyproteronum acetat 2 mg, Ethinylestradiolum 35 microg.

Umfjöllun: Diane mite er fyrst og fremst ætluð konum sem eiga við húðvandamál, hárlos eða óeðlilega mikinn hárvöxt að stríða. Efnið cyproteronum vinnur á móti þessum kvillum en eitt sér myndi það leiða til óreglulegra blæðinga, því er estrógen notað með og saman veitir þetta örugga getnaðarvörn.

Notkun: Fyrsta taflan er tekin á fyrsta degi tíðablæðinga. Byrjað er á þeirri töflu sem merkt er þeim vikudegi sem við á. Síðan er tekin ein tafla á dag í 21 dag, alltaf á sama tíma dags. Þegar spjaldinu er lokið þá er tekið 7 daga hlé. Byrjað er á næsta spjaldi nákvæmlega eftir 7 daga hlé þó svo blæðingum sé ekki að fullu lokið.

Hvenær veitir Diane mite öryggi: Örugg getnaðarvörn er strax frá fyrsta degi ef töflurnar eru teknar samkvæmt leiðbeiningum.

Ef tafla gleymist: Ef það gleymist að taka inn töflu, er best að gera það strax og munað er eftir því. Ef meira en 36 klst. (1½ dagur) líða á milli tafla þá er getnaðarvörnin ekki lengur örugg og því nauðsynlegt að nota aðra getnaðarvörn þar til spjaldið er búið. Taflan (töflurnar) sem gleymdist er sleppt og sú næsta er tekin á réttum tíma til að tíðahringurinn haldist réttur.

Frestun tíðablæðinga: Ef fresta þarf tíðablæðingum þá er byrjað á næsta spjaldi án þess að gera hlé. Ekki er æskilegt að fresta blæðingum um meira en 21 dag þar sem það eykur hættu á blæðingatruflunum.

Til athugunar: Ef grunur er um þungun skal hætta notkun lyfsins strax þar sem lyfið getur haft skaðleg áhrif á karlfóstur.

Gracial

Innihaldsefni: Desogestrelum 25 microg og Ethinylestradiolum 40 microg.

Umfjöllun: Gracial er svokölluð tvífasa getnaðarvörn þar sem um er að ræða stigvaxandi prógestínstyrk en á sama tíma minnkandi estrógenstyrk (bláar töflur og hvítar töflur).

Þetta getnaðarvarnarlyf hentar einkum konum sem fá milliblæðingar við notkun annarra lágskammta getnaðarvarnartaflna.

Getnaðarvörn lyfsins byggist fyrst og fremst á því að komið er í veg fyrir egglos. Jafnframt hafa hormónin áhrif á slímmyndun í leghálsinum þannig að sæðisfrumur komast síður upp í legið og frjógvað egg nær síður festu í slímhúð legsins.

Notkun: Fyrsta taflan (nr. 1 á spjaldinu) er tekin á fyrsta degi tíðablæðinga. Síðan eru töflurnar teknar daglega í 22 daga, best er að taka töflurnar alltaf inn á sama tíma dags. Eftir 22 daga er tekið 6 daga hlé og verða þá blæðingar. Töfluhlé má aldrei vera lengur en 6 dagar til að öryggi getnaðarvarnarinnar haldist.

Ef verið er að skipta yfir í Gracial frá öðru getnaðarvarnarlyfi, þá er fyrsta taflan tekin daginn eftir að gamla spjaldið kláraðist, þannig að ekkert hlé er gert á töfluinntöku. Ef gamla spjaldið inniheldur 28 töflur þá er þeim síðustu 7 töflum sleppt (innihalda óvirk efni).

Hvenær veitir Gracial öryggi: Örugg getnaðarvörn er strax frá fyrsta degi ef töflurnar eru teknar samkvæmt leiðbeiningum.

Ef tafla gleymist: Ef það gleymist að taka töflu, þá er best að gera það strax og munað er eftir henni. Ef meira en 36 klst. (1½ dagur) líða frá því að síðasta tafla var tekin þá er getnaðarvörnin ekki lengur örugg og því nauðsynlegt að nota aðra getnaðarvörn með töflunum næstu 7 dagana.

Ef fleiri en ein tafla gleymist þá er síðasta taflan sem gleymdist tekin og hinum sleppt. Svo er haldið áfram eins og venjulega. Ef færri en 7 töflur eru eftir á spjaldinu þegar þetta gerist þá er spjaldið klárað og byrjað er á næsta spjaldi án þess að taka hlé, annars er spjaldið klárað og hlé gert eins og venjulega.

Frestun tíðablæðinga: Ef fresta á tíðablæðingum er það gert þannig að ekkert 6 daga hlé er tekið heldur er strax byrjað á hvítu töflunum í næstu pakkningu, bláu töflunum á því spjaldi er sleppt. Haldið er áfram að taka töflurnar svo lengi sem fresta á blæðingunum. Ef fresta á blæðingum í meira en 15 daga þá þarf að byrja á næsta spjaldi á sama hátt og áður þ.e. taka bara hvítu töflurnar. Ekki er ráðlagt að fresta tíðablæðingum lengur en í 22 daga þar sem það eykur hættu á blæðingatruflunum.

Harmonet

Innihaldsefni: Ethinylestradiolum 20 microg. og gestoden 75 microg.

Umfjöllun: Harmonet er lágskammta, einfasa getnaðarvarnarlyf, sem þýðir það að allar töflurnar innihalda sömu hlutföll af innihaldsefnum.

Getnaðarvörn lyfsins byggist fyrst og fremst á því að komið er í veg fyrir egglos. Jafnframt hafa hormónin áhrif á slímmyndun í leghálsinum þannig að sæðisfrumur komast síður upp í legið og frjógvað egg nær síður festu í slímhúð legsins.

Notkun: Fyrsta taflan er tekin á fyrsta degi tíðablæðinga. Hvert spjald inniheldur 21 töflu. Tekin er sú tafla sem svarar til viðeigandi vikudags. Síðan er ein tafla tekin daglega, helst á sama tíma dags. Þegar spjaldið klárast er tekið 7 daga hlé og verða þá tíðablæðingar. Að 7 dögum liðnum er byrjað á næsta spjaldi sama þótt tíðablæðingum sé ekki lokið.

Ef verið er að skipta yfir í Harmonet frá annarri töflutegund þá er fyrsta taflan tekin strax næsta dag eftir að hitt töfluspjaldið klárast án þess að hlé sé gert.

Hvenær veitir Harmonet öryggi: Örugg getnaðarvörn er strax frá fyrsta degi ef töflurnar eru teknar samkvæmt leiðbeiningum.

Ef tafla gleymist: Ef ein tafla gleymist er best að taka hana inn strax og munað er eftir henni. Hafi gleymst að taka inn fleiri en eina töflu þá er aðeins sú síðasta tekin en hinum sleppt. Síðan er spjaldið klárað og hlé gert á töfluinntöku eins og venjulega. Ef hins vegar færri en 7 töflur eru eftir á spjaldinu þá er það klárað og byrjað á næsta spjaldi án þess að gera hlé á milli (frestun verður á tíðablæðingum).

Ef gleymst hefur að taka töflu lengur en 12 klst. (½ dag) þá er getnaðarvörnin ekki lengur örugg næstu 7 dagana. Því þarf að nota aðra getnaðarvörn samtímis inntöku taflnanna þessa daga.

Frestun tíðablæðinga: Ef fresta þarf tíðablæðingum þá er haldið áfram á næsta spjaldi án þess að gera hlé. Ekki er æskilegt að fresta blæðingum um meira en 21 dag þar sem það eykur hættu á blæðingatruflunum.

Marvelon

Innihaldsefni: Desogestrelum 0,15 mg og Ethinylestradiolum 30 microg.

Umfjöllun: Marvelon er lágskammta, einfasa getnaðarvarnarlyf, sem þýðir það að allar töflurnar innihalda sömu hlutföll af innihaldsefnunum.

Talið er að Marvelon hafi umfram getnaðarvörnina jákvæð áhrif á bólur og óeðlilega mikinn hárvöxt.

Getnaðarvörn lyfsins byggist fyrst og fremst á því að komið er í veg fyrir egglos. Jafnframt hafa hormónin áhrif á slímmyndun í leghálsinum þannig að sæðisfrumur komast síður upp í legið og frjógvað egg nær síður festu í slímhúð legsins.

Notkun: Fyrsta taflan er tekin á fyrsta degi tíðablæðinga. Byrjað er á þeirri töflu sem merkt er þeim vikudegi sem við á. Síðan er tekin ein tafla á dag í 21 dag, helst alltaf á sama tíma. Þegar spjaldinu er lokið þá er tekið 7 daga hlé. Að 7 dögum liðnum er byrjað á næsta spjaldi sama þótt tíðablæðingum sé ekki lokið.

Hvenær veitir Marvelon öryggi: Örugg getnaðarvörn er strax frá fyrsta degi ef töflurnar eru teknar samkvæmt leiðbeiningum.

Ef tafla gleymist: Ef það gleymist að taka inn töflu þá er best að gera það strax og munað er eftir henni. Ef liðnar eru meira en 36 klst. (1½ dagur) frá inntöku síðustu töflunnar þá er öryggi getnaðarvarnarlyfsins ekki tryggt næstu 7 dagana. Þessa daga þarf að nota aðra getnaðarvörn samtímis inntöku taflnanna.

Hafi gleymst að taka inn fleiri en eina töflu þá er aðeins sú síðasta tekin en hinum sleppt. Síðan er spjaldið klárað og hlé gert á töfluinntöku eins og venjulega. Ef hins vegar færri en 7 töflur eru eftir á spjaldinu þá er það klárað en byrjað er á næsta spjaldi án þess að gera hlé (frestun verður á tíðablæðingum).

Frestun tíðablæðinga: Ef fresta þarf tíðablæðingum þá er haldið áfram á næsta spjaldi án þess að gera hlé. Ekki er æskilegt að fresta blæðingum um meira en 21 dag þar sem það eykur hættu á blæðingatruflunum.

Mercilon

Innihaldsefni: Desogestrelum 0,15 mg og Ethinylestradiolum 20 microg.

Umfjöllun: Mercilon er lágskammta, einfasa getnaðarvörn, þannig að allar töflurnar innihalda sama magn af hormónum.

Getnaðarvörn lyfsins byggist fyrst og fremst á því að komið er í veg fyrir egglos. Jafnframt hafa hormónin áhrif á slímmyndun í leghálsinum þannig að sæðisfrumur komast síður upp í legið og frjóvgað egg nær síður festu í slímhúð legsins.

Notkun: Fyrsta taflan er tekin á fyrsta degi tíðablæðinga. Byrjað er á þeirri töflu sem merkt er þeim vikudegi sem við á. Síðan er tekin ein tafla á dag í 21 dag, helst alltaf á sama tíma. Þegar spjaldinu er lokið þá er tekið 7 daga hlé. Að 7 dögum liðnum er byrjað á næsta spjaldi sama þótt tíðablæðingum sé ekki lokið.

Hvenær veitir Mercilon öryggi: Örugg getnaðarvörn er strax frá fyrsta degi ef töflurnar eru teknar samkvæmt leiðbeiningum.

Ef tafla gleymist: Ef það gleymist að taka inn töflu þá er best að gera það strax og munað er eftir henni. Ef liðnar eru meira en 36 klst. (1½ dagur) frá inntöku síðustu töflunnar þá er öryggi getnaðarvarnarlyfsins ekki tryggt næstu 7 dagana. Þessa daga þarf að nota aðra getnaðarvörn samtímis inntöku taflnanna.

Hafi gleymst að taka inn fleiri en eina töflu þá er aðeins sú síðasta tekin en hinum sleppt. Síðan er spjaldið klárað og hlé gert á töfluinntöku eins og venjulega. Ef hins vegar færri en 7 töflur eru eftir á spjaldinu þá er það klárað en byrjað er á næsta spjaldi án þess að gera hlé á milli (frestun verður á tíðablæðingum).

Frestun tíðablæðinga: Ef fresta þarf tíðablæðingum þá er haldið áfram á næsta spjaldi án þess að gera hlé. Ekki er æskilegt að fresta blæðingum um meira en 21 dag þar sem það eykur hættu á blæðingatruflunum.

Microgyn

Innihaldsefni: Levonorgestrelum 0,15 mg og Ethinylestradiolum 30 microg.

Umfjöllun: Microgyn er með elstu getnaðarvarnartöflum á markaðnum í dag. Microgyn er einfasa getnaðarvarnarlyf, þannig að allar töflurnar innihalda sama magn af hormónum.

Getnaðarvörn lyfsins byggist fyrst og fremst á því að komið er í veg fyrir egglos. Jafnframt hafa hormónin áhrif á slímmyndun í leghálsinum þannig að sæðisfrumur komast síður upp í legið og frjóvgað egg nær síður festu í slímhúð legsins.

Notkun: Meðferð hefst á 1. degi tíðablæðinga. Síðan er ein tafla tekin daglega, best að taka þær inn sama tíma dags, þar til spjaldið er klárað en þá er gert 7 daga hlé. Í þessu hléi verða blæðingar. Að 7 dögum liðnum er byrjað á næsta spjaldi sama þótt tíðablæðingum sé ekki lokið.

Hvenær veitir Microgyn öryggi: Örugg getnaðarvörn er strax frá fyrsta degi ef töflurnar eru teknar samkvæmt leiðbeiningum.

Ef tafla gleymist: Ef það gleymist að taka inn töflu þá er best að gera það strax og munað er eftir henni. Ef liðnar eru meira en 36 klst. (1½ dagur) frá inntöku síðustu töflunnar þá er öryggi getnaðarvarnarlyfsins ekki tryggt næstu 7 dagana. Þessa daga þarf að nota aðra getnaðarvörn samtímis inntöku taflnanna.

Hafi gleymst að taka inn fleiri en eina töflu þá er aðeins sú síðasta tekin en hinum sleppt. Síðan er spjaldið klárað og hlé gert á töfluinntöku eins og venjulega. Ef hins vegar færri en 7 töflur eru eftir á spjaldinu þá er það klárað en byrjað er á næsta spjaldi án þess að gera hlé á milli (frestun verður á tíðablæðingum).

Frestun tíðablæðinga: Ef fresta þarf tíðablæðingum þá er haldið áfram á næsta spjaldi án þess að gera hlé. Ekki er æskilegt að fresta blæðingum um meira en 21 dag þar sem það eykur hættu á blæðingatruflunum.

Neogynon

Innihaldsefni: Levonorgestrelum 0,25 mg og Ethinylestradiolum 50 microg.

Umfjöllun: Neogynon er einfasa getnaðarvarnarlyf, þannig að allar töflurnar innihalda sama magn af hormónum.

Getnaðarvörn lyfsins byggist fyrst og fremst á því að komið er í veg fyrir egglos. Jafnframt hafa hormónin áhrif á slímmyndun í leghálsinum þannig að sæðisfrumur komast síður upp í legið og frjóvgað egg nær síður festu í slímhúð legsins.

Notkun: Meðferð hefst á 5. degi eftir upphaf blæðinga. Síðan er ein tafla tekin daglega, best að taka þær inn sama tíma dags, þar til spjaldið er klárað en þá er gert 7 daga hlé. Í þessu hléi verða tíðablæðingar. Að 7 dögum liðnum er byrjað á næsta spjaldi sama þótt tíðablæðingum sé ekki lokið.

Hvenær veitir Neogynon öryggi: Æskilegt er að önnur getnaðarvörn sé notuð samhliða inntöku taflnanna fyrstu 14 dagana.

Ef tafla gleymist: Ef það gleymist að taka inn töflu þá er best að gera það strax og munað er eftir henni. Ef liðnar eru meira en 36 klst. (1½ dagur) frá inntöku síðustu töflunnar þá er öryggi getnaðarvarnarlyfsins ekki tryggt næstu 7 dagana. Þessa daga þarf að nota aðra getnaðarvörn samtímis inntöku taflnanna.

Hafi gleymst að taka inn fleiri en eina töflu þá er aðeins sú síðasta tekin en hinum sleppt. Síðan er spjaldið klárað og hlé gert á töfluinntöku eins og venjulega. Ef hins vegar færri en 7 töflur eru eftir á spjaldinu þá er það klárað en byrjað er á næsta spjaldi án þess að gera hlé á milli (frestun verður á tíðablæðingum).

Trinovum

Innihaldsefni: Norethisteronum 0,5 mg;0,75 mg;1 mg og Ethinylestradiolum 35 microg.

Umfjöllun: Trinovum er lágskammta, þrífasa getnarvarnarlyf. Prógestínmagn taflanna eykst eftir því sem á líður tíðahringinn en estrógenmagnið breytist ekki.

Lyfið fæst bæði sem 3*21 skammtar og 3*28 skammtar. Þegar 28 daga skammtarnir eru teknir þá er ekkert hlé gert á inntöku taflanna en síðustu 7 töflurnar innihalda óvirkt efni.

Getnaðarvörn lyfsins byggist fyrst og fremst á því að komið er í veg fyrir egglos. Jafnframt hafa hormónin áhrif á slímmyndun í leghálsinum þannig að sæðisfrumur komast síður upp í legið og frjóvgað egg nær síður festu í slímhúð legsins.

Notkun: Fyrsta taflan er tekin á fyrsta degi tíðablæðinga og síðan er ein tafla tekin daglega, helst alltaf sama tíma dags, í 21 dag samfleytt. Fyrst eru hvítu töflurnar teknar, síðan þær ljósferskjulituðu og að lokum ferskjulituðu töflurnar. Eftir 21 dag er gert hlé í 7 daga og verða þá blæðingar. Að 7 dögum liðnum er byrjað á næsta spjaldi sama þótt tíðablæðingum sé ekki lokið. Ef 28 daga skammtarnir eru notaðir þá er ekkert töfluhlé gert heldur eru grænu töflurnar teknar síðustu 7 dagana og á þeim tíma verða tíðablæðingar. Þegar spjaldið klárað er strax byrjað á næsta spjaldi daginn eftir.

Hvenær veitir Trinovum öryggi: Örugg getnaðarvörn er strax frá fyrsta degi ef töflurnar eru teknar samkvæmt leiðbeiningum.

Ef tafla gleymist: Ef tafla gleymist þá er best að taka hana inn strax og munað er eftir henni. Næsta tafla er svo tekin á venjulegum tíma. Ef meira en 36 klst. (1½ dagur) líða milli töfluinntöku þá er getnaðarvörnin ekki lengur örugg. Nota þarf aðra getnaðarvörn samtímis inntöku taflanna næstu 7 dagana.

Hafi gleymst að taka inn fleiri en eina töflu þá er aðeins sú síðasta tekin en hinum sleppt. Síðan er spjaldið klárað og hlé gert á töfluinntöku eins og venjulega.

Frestun tíðablæðinga: Þegar spjaldið er klárað þá er ekki tekið 7 daga hlé heldur eru síðustu 7 töflurnar (ferskjulitaðar töflur) á næsta spjaldi teknar. Ef fresta þarf blæðingum lengur en í viku þá þarf að taka ferskjulituðu töflurnar af enn öðru spjaldi. Ekki er æskilegt að fresta blæðingum lengur en í 21 dag þar sem það eykur hættu á blæðingatruflunum.

Triquilar

Innihaldsefni: Levonorgestrelum 50 microg.;75 microg.;0,125 mg og Ethinylestradiolum 30 microg.;40 microg.;30 microg.

Umfjöllun: Triquilar er lágskammta, þrífasa getnaðarvarnarlyf. Prógestínmagn taflanna eykst eftir því sem á líður tíðahringinn.

Getnaðarvörn lyfsins byggist fyrst og fremst á því að komið er í veg fyrir egglos. Jafnframt hafa hormónin áhrif á slímmyndun í leghálsinum þannig að sæðisfrumur komast síður upp í legið og frjóvgað egg nær síður festu í slímhúð legsins.

Notkun: Notkun á lyfinu hefst ætíð í tengslum við tíðablæðingar. Fyrsta taflan er tekin á fyrsta degi tíðablæðinga. Töflutakan hefst alltaf úr þeim hluta sem merktur er "Start" síðan er stefnu örvanna fylgt. Ein tafla er tekin daglega, helst alltaf á sama tíma dags, í 21 dag, síðan er gert 7 daga hlé og verða þá tíðablæðingar. Að 7 dögum liðnum er byrjað á næsta spjaldi sama þótt tíðablæðingum sé ekki lokið.

Hvenær veitir Triquilar öryggi: Örugg getnaðarvörn er strax frá fyrsta degi ef töflurnar eru teknar samkvæmt leiðbeiningum.

Ef tafla gleymist: Ef tafla gleymist þá er best að taka hana strax og munað er eftir henni. Næsta tafla er síðan tekin eins og venjulega. Ef meira en 36 klst. (1½ dagur) líða milli taflnainntöku þá er getnaðarvörnin ekki lengur örugg og því verður að nota aðra getnaðarvörn næstu 7 dagana samtímis inntöku taflnanna.

Hafi gleymst að taka inn fleiri en eina töflu þá er aðeins sú síðasta tekin en hinum sleppt. Síðan er spjaldið klárað og hlé gert á töfluinntöku eins og venjulega.

Frestun tíðablæðinga: Þegar spjaldið er klárað þá er ekki tekið 7 daga hlé heldur eru síðustu 7 töflurnar (gular töflur) á næsta spjaldi teknar. Ef fresta þarf blæðingum lengur en í viku þá þarf að taka síðustu 7 töflurnar af enn öðru spjaldi. Ekki er æskilegt að fresta blæðingum lengur en í 21 dag þar sem það eykur hættu á blæðingatruflunum.

Yasmin

Innihaldsefni: Etinylestradiolum 30 microg. og drospirenonum 3 mg.

Umfjöllun: Yasmin er lágskammta, einfasa getnaðarvarnarlyf sem þýðir að allar töflurnar innihalda sömu hlutföll af innihaldsefnum.

Getnaðarvörn lyfsins byggist fyrst og fremst á því að komið er í veg fyrir egglos. Jafnframt hafa hormónin áhrif á slímmyndun í leghálsinum þannig að sæðisfrumur komast síður upp í legið og frjógvað egg nær síður festu í slímhúð legsins.

Yasmin inniheldur nýja tegund prógesteróns, drospirenonum, og hefur það væga andmíneralkortikóíð og andandrógen verkun. Það hefur því sýnt sig að Yasmín henti vel konum sem eiga við fyrirtíðaspennu og/eða húðvandamál að stríða.

Notkun: Fyrsta taflan er tekin á fyrsta degi tíðablæðinga. Byrjað er á þeirri töflu sem merkt er þeim vikudegi sem við á. Síðan er tekin ein tafla á dag í 21 dag, helst alltaf á sama tíma. Þegar spjaldinu er lokið þá er tekið 7 daga hlé. Að 7 dögum liðnum er byrjað á næsta spjaldi sama þótt tíðablæðingum sé ekki lokið.

Þegar skipt er frá öðru getnaðarvarnarlyfi má hefja töku Yasmin daginn eftir 7 daga hléið.

Ef skipt er frá getnaðarvörn sem eingöngu inniheldur prógesterón þá má skipta yfir í Yasmin hvenær sem er.

Hvenær veitir Yasmin öryggi: Örugg getnaðarvörn er strax frá fyrsta degi ef töflurnar eru teknar samkvæmt leiðbeiningum.

Ef tafla gleymist: Ef það gleymist að taka inn töflu þá er best að gera það strax og munað er eftir henni, jafnvel þótt þurfi að taka tvær töflur samtímis. Ef liðnar eru meira en 12 klst. (½ dagur) frá inntöku síðustu töflunnar þá er öryggi getnaðarvarnarlyfsins ekki tryggt næstu 7 dagana. Þessa daga þarf að nota aðra getnaðarvörn samtímis inntöku taflnanna.

Hafi gleymst að taka inn fleiri en eina töflu þá er aðeins sú síðasta tekin en hinum sleppt. Síðan er spjaldið klárað og hlé gert á töfluinntöku eins og venjulega. Nota verður aðra getnaðarvörn að auki næstu 7 daga. Ef hins vegar færri en 7 töflur eru eftir á spjaldinu þá er það klárað en byrjað er á næsta spjaldi án þess að gera hlé (frestun verður á tíðablæðingum).

Frestun tíðablæðinga: Ef fresta þarf tíðablæðingum þá er haldið áfram á næsta spjaldi án þess að gera hlé. Þegar óskað er eftir tíðablæðingum er töku taflnanna hætt. Auknar líkur eru á milliblæðingum dagana sem tíðablæðingum er frestað. Byrja skal á næsta töfluspjaldi eftir venjulegt 7 daga töfluhlé.

Yasminelle

Innihaldsefni: Etinylestradiolum 20 microg. og drospirenonum 3 mg.

Umfjöllun: Yasminelle er lágskammta, einfasa getnaðarvarnarlyf sem þýðir að allar töflurnar innihalda sömu hlutföll af innihaldsefnum.

Getnaðarvörn lyfsins byggist fyrst og fremst á því að komið er í veg fyrir egglos. Jafnframt hafa hormónin áhrif á slímmyndun í leghálsinum þannig að sæðisfrumur komast síður upp í legið og frjógvað egg nær síður festu í slímhúð legsins.

Yasminelle inniheldur nýja tegund prógesteróns, drospirenonum, og hefur það væga andmíneralkortikóíð og andandrógen verkun. Það hefur því sýnt sig að Yasmín henti vel konum sem eiga við fyrirtíðaspennu og/eða húðvandamál að stríða.

Notkun: Fyrsta taflan er tekin á fyrsta degi tíðablæðinga. Byrjað er á þeirri töflu sem merkt er þeim vikudegi sem við á. Síðan er tekin ein tafla á dag í 21 dag, helst alltaf á sama tíma. Þegar spjaldinu er lokið þá er tekið 7 daga hlé. Að 7 dögum liðnum er byrjað á næsta spjaldi sama þótt tíðablæðingum sé ekki lokið.

Þegar skipt er frá öðru getnaðarvarnarlyfi má hefja töku Yasminelle daginn eftir 7 daga hléið eða eftir töku síðustu lyfleysutöflunnar af fyrri getnaðarvarnartöflutegundinni.

Ef skipt er frá getnaðarvörn sem eingöngu inniheldur prógesterón þá má skipta yfir í Yasminelle hvenær sem er en í öllum tilfellum ætti að nota getnaðarvarnir án hormóna, fyrstu 7 daga töflutökunnar.

Hvenær veitir Yasminelle öryggi: Æskilegt er að önnur getnaðarvörn sé notuð samhliða inntöku taflnanna fyrstu 7 dagana.

Ef tafla gleymist: Ef það gleymist að taka inn töflu þá er best að gera það strax og munað er eftir henni, jafnvel þótt þurfi að taka tvær töflur samtímis. Ef liðnar eru meira en 12 klst. (½ dagur) frá inntöku síðustu töflunnar þá er öryggi getnaðarvarnarlyfsins ekki tryggt næstu 7 dagana. Þessa daga þarf að nota aðra getnaðarvörn samtímis inntöku taflnanna.

Hafi gleymst að taka inn fleiri en eina töflu þá er aðeins sú síðasta tekin en hinum sleppt. Síðan er spjaldið klárað og hlé gert á töfluinntöku eins og venjulega. Nota verður aðra getnaðarvörn að auki næstu 7 daga. Ef hins vegar færri en 7 töflur eru eftir á spjaldinu þá er það klárað en byrjað er á næsta spjaldi án þess að gera hlé (frestun verður á tíðablæðingum).

Frestun tíðablæðinga: Ef fresta þarf tíðablæðingum þá er haldið áfram á næsta spjaldi án þess að gera hlé. Þegar óskað er eftir tíðablæðingum er töku taflnanna hætt. Auknar líkur eru á milliblæðingum dagana sem tíðablæðingum er frestað. Byrja skal á næsta töfluspjaldi eftir venjulegt 7 daga töfluhlé.

(Texti yfirfarinn í  október 2008; Jóna Valdís Ólafsdóttir, lyfjafræðingur).



© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.