Að taka inn lyf

Að taka inn lyf > Getnaðarvarnir > Greinar > Önnur lyf til getnaðarvarna
Önnur lyf til getnaðarvarna
Jóna Valdís Ólafsdóttir, lyfjafræðingur

Það eru til fleiri lyf en “pillan” sem eru notuð til getnaðarvarna. Önnur getnaðarvarnarlyf innihalda svipuð hormón og getnaðarvarnartöflur en eru frábrugðin að því leyti að þau eru á öðru lyfjaformi. Hér er um að ræða stungulyf, plástur, lykkju til uppsetningar í leg, hring til uppsetningar í leggöng og staf sem settur er undir húð.

Áður en farið er að nota getnaðarvarnarlyf er nauðsynlegt að framkvæma ítarlega líkamsskoðun (t.d. skoðun á brjóstum og frumuskoðun úr leghálsi) og kanna sjúkrasögu fjölskyldunnar. Útiloka þarf truflanir á blóðstorknun og útiloka þarf þungun. Til öryggis er best að endurtaka skoðun á 6-12 mánaða fresti meðan getnaðarvarnarlyf er notað.

Getnaðarvarnarlyf þolast almennt mjög vel. Helstu aukaverkanir geta verið t.d. höfuðverkur, ógleði, þyngdaraukning og mögulega breytingar á kynhvöt. Til að skoða aukaverkanir hverrar tegundar fyrir sig, má fletta upp í Lyfjabókinni sem er á forsíðu Lyfjuvefsins.

Þær getnaðarvarnir sem fjallað er um hér veita ekki vörn gegn HIV sýkingu (alnæmi [AIDS]), klamydíu eða öðrum kynsjúkdómum frekar en aðrar tegundir getnaðarvarna sem innihalda hormón.

Depo-Provera

Innihaldsefni: Medroxyprogesteronasetat 50 mg/mL.

Umfjöllun: Depo-Provera er stungulyf og er notað við blæðingaóreglu, ofvexti í legslímhúð og í undantekningartilfellum sem getnaðarvörn, t.d. þegar getnaðarvarnartöflur eða aðrar getnaðarvarnir henta ekki eða eru óásættanlegar. Lyfið verkar sem getnaðarvörn vegna samspils þriggja þátta, þ.e. það kemur í veg fyrir egglos, veldur breytingum á slímhúð í leghálsi og hefur áhrif á legslímhúð.

Notkun: Depo-Provera er sprautað djúpt í vöðva á 3 mánaða fresti, yfirleitt í þjóvöðva (rasskinn) eða axlarvöðva. Meðferð á að byrja á fyrstu 5 dögum tíðablæðinga. Ef nota á Depo-Provera sem getnaðarvörn eftir fæðingu barns á að gefa lyfið innan 5 daga frá fæðingu ef móðirin er ekki með barnið á brjósti. Ef móðirin er með barnið á brjósti á að gefa upphafsskammt Depo-Provera 6 vikum eftir fæðingu.

Hvenær veitir Depo-Provera öryggi: Örugg getnaðarvörn er strax frá fyrsta degi og sprautan er gefin samkvæmt leiðbeiningum.

Til athugunar: Hjá flestum konum sem nota Depo-Provera verður truflun á tíðahringnum, þ.e. óreglulegar blæðingar, tíðateppa eða miklar blæðingar.

Depo-Provera stungulyf lækkar magn hormónsins östrógens í blóði sem með tímanum veldur beintapi. Beintap eykst eftir því sem notkun er lengri og er ekki öruggt að það gangi að fullu til baka eftir að meðferð með Depo-Provera er hætt. Það er því ráðlegt að taka inn kalktöflur og D-vítamín samhliða notkun Depo-Provera til þess að vinna á móti beinþynningaráhrifum lyfsins.

Það þarf að endurmeta vandlega kosti og galla meðferðar hjá konum sem óska eftir því að nota Depo-Provera lengur en í 2 ár.

Evra

Innihaldsefni: 6 mg af norelgestromin og 600 microg af etinylestradiol. Hver forðaplástur gefur frá sér 150 microg af norelgestromini og 20 microg af etinylestradioli á sólarhring.

Umfjöllun: Evra er forðaplástur sem límdur er á hreina, þurra, hárlausa, heila og heilbrigða húð á rasskinn, kviði, utan á upphandlegg eða efri búk á stað þar sem plásturinn nuddast ekki af þröngum klæðnaði. Getnaðarvörn lyfsins byggist fyrst og fremst á því að komið er í veg fyrir egglos. Jafnframt valda hormónin hugsanlega breytingum á leghálsslími og legslímu þannig að sæðisfrumur komast síður upp í legið og frjóvgað egg nær síður festu í slímhúð legsins.

Notkun: Meðferð hefst á 1. degi tíðablæðinga. 1 plástur er settur á líkamann og hafður þar í 7 daga. Skipt er um plástur á sama degi í hverri viku (á 8. og 15. degi). Fjórða vikan er svo plástursfrí en hún byrjar á 22. degi tíðahrings. Í þeirri viku verða blæðingar. Síðan er þetta endurtekið. Það á byrja aftur að nota Evra plásturinn 7 dögum eftir að síðasti plásturinn var tekinn af þó svo að blæðingar hafi ekki byrjað eða þeim sé ekki lokið. Fara þarf nákvæmlega eftir leiðbeiningunum til að ná hámarksvirkni.

Hvenær veitir Evra öryggi: Nota þarf aðra getnaðarvörn sem inniheldur ekki hormóna fyrstu 7 dagana.

Ef gleymist að skipta um plástur:

Ef gleymist að skipta um plástur í byrjun plásturshrings (fyrsta vika/1. dagur) skal setja fyrsta plásturinn í nýjum hring á sig um leið og munað er. Þá er kominn nýr „skiptidagur”og nýr „1. dagur”. Nota verður getnaðarvörn sem inniheldur ekki hormóna samhliða meðferðinni fyrstu 7 daga nýs meðferðarhrings.

Ef gleymist að skipta um plástur í miðjum hring (önnur vika/8. dagur eða þriðja vika/15. dagur) á strax að setja á sig nýjan plástur ef um minna en 2 daga er að ræða. Svo er skipt aftur um plástur á hinum venjulega “skiptidegi”. Ekki er þörf á annarri getnaðarvörn. Ef hins vegar meira en 2 dagar líða frá því skipta átti um plástur þarf að byrja strax á nýjum meðferðarhring með því að setja á nýjan plástur og þá er kominn nýr “1. dagur” og nýr “skiptidagur”. Nota verður getnaðarvörn sem inniheldur ekki hormóna samhliða meðferðinni fyrstu 7 daga nýs meðferðarhrings.

Ef plásturinn er ekki fjarlægður í byrjun 4. viku (22. dagur) skal fjarlægja hann eins fljótt og auðið er. Næsti meðferðarhringur skal hafinn á hinum venjulega „skiptidegi” sem er dagurinn eftir 28. dag. Ekki er þörf á frekari getnaðarvörnum.

Frestun tíðablæðinga: Til að fresta tíðablæðingum í eitt skipti verður konan að setja nýjan plástur á sig í byrjun 4. viku (22. dagur) og sleppa því plásturslausa tímabilinu í það skiptið. Milliblæðingar eða blettablæðingar geta þá komið fyrir.

Implanon

Innihaldsefni: 68 mg af etonogestrel sem losna hægt út í líkamann á 3 árum.

Umfjöllun: Implanon vefjalyf er lítill stafur úr plasti sem auðvelt er að beygja. Hann er 4 cm að lengd og 2 mm í þvermál. Örlítið magn hormóns losnar stöðugt frá stafnum og berst út í blóðið. Hormónið veitir getnaðarvörn með því að hindra egglos og valda breytingum í leghálsi sem hindrar að sæðisfrumur komist upp í legið. Stafurinn sjálfur er framleiddur úr plastefni sem ekki leysist upp í líkamanum.

Notkun: Læknir setur Implanon undir húð á innanverðum upphandlegg. Implanon virkar í 3 ár en þá þarf læknir að fjarlægja stafinn og koma nýjum fyrir ef konan vill nota Implanon áfram. Hægt er að fjarlægja Implanon hvenær sem er ef konan vill verða þunguð eða skipta um getnaðarvörn.

Hvenær veitir Implanon öryggi: Implanon er örugg getnaðarvörn frá fyrsta degi.

Til athugunar: Blæðingar geta orðið óreglulegar við notkun Implanon en þó er það einstaklingsbundið.

Mirena (hét áður Levonova)

Innihaldsefni: Levonorgestrel, losunarhraði 20 microg á sólahring.

Umfjöllun: Mirena nefnist “lykkjan” eða "hormónalykkjan" í daglegu tali. Levónorgestrel veldur breytingum á slímhúð legsins með þeim afleiðingum að frjóvguð eggfruma nær síður að hreiðra þar um sig. Leghálsslímið þykknar og sáðfrumur eiga erfitt með að komast upp leghálsinn.

Notkun: Mirena er sett upp í legið af lækni og getnaðarvörnin er virk í 5 ár. Konan þarf að koma í skoðun 4-12 vikum eftir uppsetningu og einu sinni á ári eftir það. Lykkjan er sett í legið innan 7 daga frá upphafi tíðablæðinga eða í fyrsta lagi 6 vikum eftir fæðingu barns. Óski konan eftir að nota sömu getnaðarvörn áfram að 5 árum liðnum má setja nýja lykkju upp á sama tíma og sú gamla er fjarlægð.

Hvenær veitir Mirena öryggi: Mirena er örugg getnaðarvörn frá fyrsta degi.

Til athugunar: Þegar lykkjan er sett upp eða fjarlægð geta í fyrstu komið fram verkir og blæðingar sem síðan líða hjá sé allt eðlilegt. Lykkjan hentar ekki konum sem ekki hafa eignast barn.

NuvaRing

Innihaldsefni: 11,7 mg af etonogestrel og 2,7 mg af etinylestradiol. Hver hringur gefur frá sér 150 microg af etonogestreli og 15 microg af etinylestradioli á sólarhring í 3 vikur.

Umfjöllun: NuvaRing er sveigjanlegur, gegnsær, nær litlaus hringur sem er 54 mm í þvermál með 4 mm þversniði. Hringurinn er settur upp í leghálsinn og kallast því skeiðarinnlegg. Getnaðarvörn lyfsins felst fyrst og fremst í því að koma í veg fyrir egglos. Jafnframt þessu hafa hormónin áhrif á slímmyndun í leghálsinum með þeim afleiðingum að sæðisfrumur komast síður upp í legið og erfitt er fyrir frjóvgað egg að festast í slímhúð legsins.

Notkun: Konan kemur hringnum sjálf fyrir í leggöngunum. Eftir 3 vikur er hringurinn fjarlægður á sama vikudegi og hann var settur upp og tekið 7 daga hlé. Þá verða tíðablæðingar. Eftir 7 daga hlé er nýr hringur settur upp.

Hvenær veitir NuvaRing öryggi: NuvaRing er örugg getnaðarvörn frá fyrsta degi.

Frávik frá ráðlagðri notkun:

Hafi hringur verið tekinn úr leggöngum skemur en í þrjár klst. hafa getnaðarvarnaráhrif ekki minnkað. Setja á hringinn í leggöng eins fljótt og hægt er (það má skola hann með volgu vatni).

Hafi hringurinn verið fjarlægður lengur en í þrjár klst. í fyrstu eða annarri viku tíðahrings geta getnaðarvarnaráhrif hafa minnkað. Setja á hringinn í leggöng strax og munað er eftir því og hafa hann þar í samfellt sjö daga án þess að gera hlé. Ef óskað er eftir að hafa samfarir þessa sjö daga á að nota verjur eða aðra getnaðarvörn án hormóna. Ef um er að ræða fyrstu viku tíðahrings og samfarir hafa átt sér stað á þessum sjö dögum er hætta á að þungun hafi orðið. Því á að hafa samband við lækninn.

Ef hringurinn hefur verið fjarlægður eða grunur leikur á að hann hafi verið fjarlægður lengur en í þrjár klst. í þriðju vikunni geta getnaðarvarnaráhrif hafa minnkað. Því skal velja aðra hvora af eftirtöldum aðferðum:

1) Koma strax fyrir nýjum hring. Þá hefst næsta 3 vikna hringtímabil. Blæðing á sér ef til vill ekki stað en milliblæðing og blettablæðingar geta komið fyrir.

2) Bíða þar til blæðing hefur átt sér stað eða koma fyrir nýjum hring eigi síðar en sjö dögum eftir að fyrri hringur var fjarlægður eða ýttist út. Aðeins má velja þessa aðferð ef NuvaRing hefur verið notaður samfellt síðustu sjö daga áður en hringurinn var fjarlægður eða ýttist út.

Hvað skal gera ef gleymst hefur að setja nýjan hring upp eftir hringlaust hlé? Setja á nýjan hring í leggöng strax og í ljós kemur að það hefur gleymst. Muna þarf að nota auka getnaðarvörn (t.d. verjur) ef samfarir eiga sér stað næstu sjö daga. Ef hafðar hafa verið samfarir í hringlausa hléinu er þungun möguleg. Því skal hafa samband við lækninn. Því lengra sem hringlausa hléið hefur verið því meiri líkur eru á þungun.

Hvað skal gera ef gleymst hefur að fjarlægja hringinn? Ef hringurinn hefur verið í leggöngum lengur en í þrjár vikur en lengst fjórar vikur, hafa getnaðarvarnaráhrif ekki minnkað. Eftir venjulegt hringlaust hlé í eina viku er nýr hringur settur í leggöng. Ef hringurinn hefur verið notaður lengur en í fjórar vikur, er hætta á þungun. Hafa skal samband við lækninn áður en farið er að nota nýjan hring.

Frestun tíðablæðinga: Hægt er að fresta blæðingum með því að setja upp nýjan hring strax og fyrri hringurinn hefur verið fjarlægður. Nýja hringinn má hafa í allt að þrjár vikur. Meðan nýi hringurinn er notaður geta orðið bletta- eða milliblæðingar.

(Texti yfirfarinn í  október 2008; Jóna Valdís Ólafsdóttir, lyfjafræðingur).
  • Greinar
  • Spurt og svarað
Fimmtudagurinn 2. agúst 2007
Getnaðarvarnartöflur - "pillan"

Þóra Jónsdóttir, lyfjafræðingur Um þrjár megingerðir er ræða: - Einfasa getnaðarvörn - Tvífasa getnaðarvörn - Þrífasa getnaðarvörn. Þessar töflur fást venjulega sem 3*21 daga skammtur. Ein tafla er tekin daglega í 21 dag, almennt er byrjað á fyrsta degi tíðablæðinga, og síðan er gert 7 daga hlé. Sumar gerðir er ein...

Meira