
Getnaðarvarnartöflur eru eitt algengasta lyfið sem afhent er gegn lyfseðli. Saga þessara lyfja nær aftur til upphafs 20. aldarinnar þegar tíðarhringur konunnar fór að skýrast. Upp úr 1960 komu fyrstu hormónalyfin á markað. Í fyrstu var nokkuð um aukaverkanir en þar sem þær reyndust skammtaháðar voru þróaðar svokallaðar fjölfasa getnaðarvarnartöflur sem innihéldu bæði estrogen og prógestin. Öryggi getnaðarvarnarlyfja er mjög mikið, almennt er talið að þau séu um 99,9% örugg til að koma í veg fyrir þunganir.