Að velja rétt verkjalyf
Mörg verkjalyf fást í lausasölu og þeim má skipta gróflega í tvo flokka. Í hinum fyrra eru verkjastillandi, hitalækkandi og bólgueyðandi lyf (Magnýl, Íbúfen, Naproxen) og í þeim síðari eru verkjastillandi og hitalækkandi lyf (Panodil, Paratabs). Þegar lyf er valið er mikilvægt að gera sér grein fyrir því hvers vegna lyfs sé óskað. Ávallt skyldi leita til læknis sé ekki er þekkt hvað veldurvanlíðan. Það er gott að hafa hugfast að líkamaninn er að láta vita að ekki sé allt með felldu þegar fundið er til verks.
Verkjalyf svo og öll önnur lyf geta átt samheitalyf. Það þýðir það að samheitalyf hefur að geyma sama virka efnið og önnur lyf en er nefnt öðrum nöfnum sem framleiðandi gefur þeim. Dæmi um þetta er Parasetamól sem er virka efnið í lyfjunum Panodil, Paratabs ofl.
Algeng verkjalyf í lausasölu
Íbúprófen: Íbúprófen (Íbúfen) er bólgueyðandi lyf með verkjastillandi og hitalækkandi verkun. Íbúprófen dregur úr myndun prostaglandínefna í líkamanum en þau valda m.a. bólgum. Íbúprófen er notað við liðagigt, slitgigt, tíðaverkjum, tannpínu, höfuðverk og sem verkjalyf eftir minni háttar aðgerðir. Íbúprófen lækkar líka hita hjá börnum. Íbúprófen er líka til með kódeíni og hefur þá verkjastillandi áhrif. Blanda þessara tveggja efna (Íbúkód) slær miklu meira á verki en sé það hvort í sínu lagi.
Parasetamól: Parasetamól er verkjastillandi og hitalækkandi lyf. Það hentar við vægum verkjum sé bólga ekki til staðar. Hægt að fá parasetamól í fjölbreytilegu lyfjaformi, í mixtúrum, stílum, töflum, munnlausnartöflum og jafnvel í eins konar te. Verkjastillandi áhrif parasetamóls eru sambærileg við asetýlsalicýlsýru (aspirín). Parasetamól er einnig notað til að slá á sótthita. Parasetamól ertir ekki magaslímhúð og hentar því þeim sem hafa fengið magasár eða eru viðkvæmir í maga. Parasetamól er oft notað með öðrum verkjastillandi efnum til þess að auka áhrif þeirra en þá duga líka minni skammtar af öðrum verkjalyfjum sem geta verið vanabindandi. Verkjastillandi efni sem eru notuð með parasetamóli eru kódein (Parkódín).
Asetýlsalicýlsýra: Asetýlsalicýlsýra er bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi. Hún hefur einnig áhrif á samloðun blóðflaga og lengir storknunartíma blóðs. Asetýlsalicýlsýra hentar við vægum verkjum, sérstaklega ef bólga er til staðar. Hún er einnig notuð til að slá á sótthita. Minni skammtar af asetýlsalicýlsýru eru notaðir sem blóðþynnandi, t.d. að lokinni aðgerð. Asetýlsalicýlsýra hefur ertandi áhrif á magaslímhúð og þess vegna eru oft húðaðar töflur eða magnesíum oxíð (í Magnyl) gefið með henni til að minnka líkur á magaertingu. Asetýlsalicýlsýra er líka til í samsetningu með koffíni (í Treo) og getur þá slegið á höfuðverk, s.s. mígreni. Asetýlsalicýlsýra er með elstu verkjalyfjunum eða frá árinu 1898 og þá í Asprin frá Bayer.
Naproxen: Naproxen er bólgueyðandi lyf með verkjastillandi og hitalækkandi verkun. Naproxen dregur úr myndun prostaglandínefna í líkamanum en þau valda m.a. bólgumyndun. Naproxen er notað við iktsýki, slitgigt, hrygggikt, þvagsýrugigt, tíðaverkjum og bólgu og verkjum eftir áverka.
Unnið upp úr Lyfjubókinni
Friðþjófur Már Sigurðsson