Að taka inn lyf

Að taka inn lyf > Lyf > Greinar > Aukaverkanir
Aukaverkanir
Öll áhrif sem lyf hefur umfram þau sem lækna sjúkdóma eða slá á einkenni hans eru aukaverkanir. Öll lyf geta valdið aukaverkunum. Lyfjameðferð byggist þess vegna alltaf á því að ávinningur af notkun þeirra vegi meira en hugsanleg áhætta af meðferðinni. Aukaverkanir lyfja geta verið misalvarlegar og misjafnt er hversu stóra skammta þarf til að valda þeim. Æskilegt er að læknandi skammtar séu mun minni en þeir skammtar sem valda aukaverkunum, en þetta er raunin í flestum tilfellum. Lyf sem valda alvarlegum aukaverkunum í skömmtum sem eru litlu stærri en læknandi skammtar eru vandmeðfarin og fylgst er reglulega með sjúklingum meðan lyfið er tekið. Dæmi um slík lyf er litíum. Áður en lyf eru sett á markað þurfa þau að uppfylla ýmis skilyrði og lúta ströngu eftirliti. Allar aukaverkanir sem koma fram meðan lyf eru í prófunum eru skráðar og skráning aukaverkana heldur áfram eftir að lyf er komið á markað. Ef alvarlegar aukaverkanir koma fram síðar á ferlinu eru forsendur fyrir notkun lyfsins endurskoðaðar.

Orsakir aukaverkana.

Flestar aukaverkanir lyfja eru fyrirsjáanlegar, þ.e. hafa sama verkunarmáta og læknandi áhrif lyfsins. Þessar aukaverkanir eru t.d. blóðþrýstingsfall af völdum lyfja sem notuð eru við of háum blóðþrýstingi eða of mikil lækkun blóðsykurs vegna lyfja við sykursýki. Hægt er að koma í veg fyrir þessa tegund aukaverkana með réttri notkun lyfja og réttum skömmtum. Í sumum tilfellum eru aukaverkanir einstaklingsbundnar og þá er sjaldan hægt að sjá þær fyrir. Þetta eru t.d. ofnæmiseinkenni eða verkanir sem rekja má til einstakra erfðaeiginleika. Enn aðrar aukaverkanir koma aðeins fram eftir notkun lyfja í langan tíma. Þetta eru aukaverkanir sem stafa að aðlögun líkamans að lyfinu. Dæmi um slíka aukaverkanir eru síðkomnar hreyfitruflanir (tardive dyskinesia) hjá sjúklingum sem þurfa að taka sefandi geðlyf árum saman. Síðustu flokkar aukaverkana eru aukaverkanir sem koma fram eftir mjög langan tíma, t.d. aukin hætta á krabbameini, og aukaverkanir sem koma fram þegar notkun lyfs er hætt. Í seinna tilvikinu er yfirleitt um að ræða að líkaminn hefur aðlagast áhrifum lyfsins og þarf tíma til að laga sig að því að lyfið sé ekki lengur til staðar.

Skráning aukaverkana

Skráning aukaverkana og tíðni þeirra gefur ekki alltaf nákvæmar upplýsingar um það hvort einstaklingur sem tekur lyfið má búast við þeim. Nokkrar ástæður eru fyrir því. Lyf eru fyrst prófuð á tiltölulega litlum hóp sjúklinga sem þurfa mest á lyfinu að halda og eru í flestum tilfellum mjög sjúkir. Í þessum prófum getur stundum verið erfitt að greina milli einkenna sjúkdóms og aukaverkana lyfsins. Til þess að greina aukaverkanir og meta tíðni þeirra þarf tiltölulega stóran hóp sjúklinga. Alvarlegar aukaverkanir eru þó áberandi og finnast mjög fljótlega, en líklegast er að vægar aukaverkanir sem líkjast einkennum algengra kvilla uppgötvist ekki. Þær kröfur sem eru gerðar um rannsóknir á lyfjum áður en þau eru sett á markað verða stöðugt strangari. Þetta hefur í för með sér að skráning aukaverkana er nákvæmari fyrir nýrri lyf en fyrir þau eldri og listi þeirra aukaverkana sem hafa sést verður oft mjög langur.

Þennan texta er að finna í Lyfjubókinni

  • Greinar
  • Spurt og svarað
Fimmtudagurinn 2. agúst 2007
Aukaverkanir

Öll áhrif sem lyf hefur umfram þau sem lækna sjúkdóma eða slá á einkenni hans eru aukaverkanir. Öll lyf geta valdið aukaverkunum. Lyfjameðferð byggist þess vegna alltaf á því að ávinningur af notkun þeirra vegi meira en hugsanleg áhætta af meðferðinni. Aukaverkanir lyfja geta verið misalvarlegar og misjafnt er hver...

Meira