Að taka inn lyf

Að taka inn lyf > Lyf á meðgöngu
Lyf á meðgöngu
Hver áhrif lyfja eru á konum á meðgöngu er ekki vitað enda meginreglan sú að prófa ekki lyf undir slíkum kringumstæður. Það þykir með réttu siðlaust að viðhafa rannsóknir á þunguðum konum og þær eru örugglega ekki margar konurnar sem hefðu áhuga á því að gerast tilraunardýr og gjalda jafnvel fyrir með dýru verði, heilsu sinni og þroska fósturs.

  • Greinar
  • Spurt og svarað
Fimmtudagurinn 2. agúst 2007
Fólinsýra á meðgöngu

Þekking varðandi inntöku á fólinsýru fyrir þungun sem forvörn gegn fósturgöllum í miðtaugakerfi hefur safnast saman undanfarin áratug. Ljóst er að regluleg inntaka fólinsýru kvenna fyrir þungun og fyrstu fjórum vikum meðgöngu dregur úr tíðni fósturskaða í miðtaugakerfi s.s. heilaleysi, klofnum hrygg og vatnshöfði. ...

Meira
Fleiri greinar