Börn og lyf
Lyf hafa önnur áhrif á barn en fullorðinn og upptaka lyfja og útskilnaður þeirra er mjög frábrugðinn því sem gerist hjá fullorðnum. Þetta þarf að hafa í huga þegar börnum eru gefin lyf. Foreldrar ættu að halda eftirfarandi heilræði í heiðri:
1. Gefið örugglega réttan skammt.
2. Gefið lyfið á réttum tíma dags.
3. Gefið lyfið eins lengi og þarf
Áður en lyf er gefið er nauðsynlegt að lesa vandlega leiðbeiningar sem fylgja því.
Þá á að gefa nákvæmlega þann skammt sem leiðbeiningar segja til um, á þeim tíma dags sem tekið er fram og eins lengi og mælt er með. Hið síðastnefnda er afar mikilvægt og á sérstaklega við um sýklalyf. Að hætta of fljótt að gefa sýklalyf getur valdið endursýkingu og ef verst lætur geta myndast ónæmir sýklar.
Skammtastærðir barna eru venjulega ákvarðaðar eftir þyngd barna en ekki aldri. Ef foreldrar eru ekki vissir um skammtastærð lyfsins ættu þeir að ráðfæra sig við lækninn sem ávísaði lyfinu eða lyfjafræðing.
Mismunandi lyfjaform eru til þess að auðvelda lyfjagjöf. Ef sjúklingur kastar til að mynda upp henta stílar betur en að gefa lyfið um munn. Stungulyf gagnast vel meðvitundarlausum.
Þótt lyfjaframleiðendur reyni eftir fremsta megni að hafa ekki lyf bragðvond getur komið upp sú staða að barn vilji alls ekki taka inn lyfið sitt. Þær leiðbeiningar handa foreldrum sem hér fara á eftir eru til þess fallnar að styðjast eingöngu við í neyð. Þegar allar bjargir virðast bannaðar og öll tiltæk ráð reynd til þrautar ættu foreldrar skilyrðislaust að hafa samband við lyfjafræðing. Forðast ætti að grípa til þessa örþrifaráðs að brjóta töflur eða opna hylki
Verið viss um að lyfið fari niður! Hvað ef barnið neytar að taka inn lyfið? Því finnst það vera vont á bragðið eða vill ekki eða á erfitt með að gleypa það.
Hið fyrsta sem kemur í hugann við slíkar aðstæður er eflaust að brjóta töfluna eða opna hylkið til að auðvelda inntökuna. Til þessa ráðs ætti þó aldrei að grípa nema að höfðu samráði við lyfjafræðing. Sumar töflur og hylki má alls ekki opna. Töflur eru gjarnan umluktar hjúp sem ekki má rjúfa. Hjúpurinn gefur sýruþolin áhrif eða forðavirkni og haft þannig áhrif á það hvar í meltingarveginum lyfið losnar úr töflunni og hversu mikið í einu. Sama gildir um hylki.
Ef það er óhætt að opna hylki eða brjóta töflur þá ætti að blanda innihaldinu við örlítinn ávaxtasafa eða annað álíka mjúkt, eins og vatn, búðing, skyr eða jógúrt. Þó ætti alltaf að láta lyfjafræðing segja sér hvað blanda megi saman við lyfið því að sum lyf geta skemmst við að blandast fæðu. Gæta skal þess að blanda lyfinu saman við nógu lítið til þess að tryggja það að barnið ljúki við allt saman, fljótt og vel. Með þessu fyrirkomulagi ætti að vera tryggt að réttur skammtur af lyfinu sé gefinn. ALDREI ætti að blanda lyfi við fæðu og láta standa í einhvern tíma. Slíkt getur dregið úr virkni lyfsins.
Í Lyfju fást sérstök áhöld til þess að kljúfa í sundur og mylja töflur. Það getur boðið hættunni heim að bisa við að brjóta töflu með eldhúshníf eða öðru nærliggjandi áhaldi af því að brot úr töflunni geta spýst burt og tapast. Sýna ætti ítrustu gætni því að lyfið getur loðað við yfirborð áhaldsins. Verið viss um að ná öllu lyfinu þegar tafla er brotin eða hylki tæmt.
Með lyfjum fylgja gjarnan hjálpartæki til gjafar eins og sprautur, skeiðar og dropateljarar svo eitthvað sé nefnt. Gangið alltaf úr skugga um að slíkt fylgi með.
Ef barnið þarf að taka lyf á þeim tíma dags sem það er í skóla er hægt að fá sérstök skammtabox sem geyma lyfið sem taka á í skólanum. Einnig er hægt að hafa samráð við skólahjúkrunarfræðing.
Fylgist með aukaverkunum eða ofnæmisviðbrögðum. Flestar aukaverkanir eru sjaldgæfar og vægar. Sumar mjög sjaldgæfar aukaverkanir geta verið alvarlegar og kalla á tafarlaus viðbrögð. Spyrjið lyfjafræðing um helstu aukaverkanir lyfs eða nálgist upplýsingar um aukaverkanir lyfja í Lyfjubókinni sem finnst á Heilsuvef Lyfju.
Fái barnið alvarleg ofnæmiseinkenni eins og þrengingu á öndunarvegi eða á erfitt með að anda, hafið þá tafarlaust samband við lækni í neyðarlínu 112. Slíkt ástand getur verið lífshættulegt og nefnist anaphylactic shock. Greinið frá hvaða lyf barnið var að taka í slíku tilfelli.
Látið lækni eða lyfjafræðing vita hvaða lyf, lausasölulyf, vítamín og náttúruefni barnið er að taka, það auðveldar leit að milliverkunum.
Þessi texti er eingöngu til fróðleiks, hann gefur ekki tæmandi upplýsingar og stenst ekki tímans tönn eins og flest allt annað á prenti.
Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur