Að taka inn lyf

Að taka inn lyf > Náttúrulyf
Náttúrulyf
Náttúrulyf innihalda eitt eða fleiri virk efni sem unnin eru á einfaldan hátt (t.d. með þurrkun, mölun, úrhlutun, eimingu, pressun) úr plöntum, dýrum, örverum, steinefnum eða söltum. Hrein efni einangruð úr náttúrunni teljast ekki náttúrulyf. Náttúrulyf eru eingöngu ætluð til inntöku eða staðbundinnar notkunar á húð eða slímhúðir. Ekki má blanda í náttúrulyf lyfseðilsskyldum efnum. Hómópatalyf teljast ekki til náttúrulyfja. Náttúrulyf geta verið ætluð mönnum eða dýrum. Sækja þarf um markaðsleyfi náttúrulyfs fyrir náttúruvöru sem er markaðssett eða auglýst á þann hátt að ljóst sé, að viðkomandi vara sé ætluð til lækninga, fróunar eða varnar gegn sjúkdómum eða sjúkdómseinkennum í mönnum eða dýrum. Sama gildir um náttúruefni sem ætlað er að hafa áhrif á líkamsstarfsemi manna eða dýra eða er markaðssett með þeim hætti.

  • Greinar
  • Spurt og svarað
Fimmtudagurinn 2. agúst 2007
Aukaverkanir og milliverkanir náttúrulyfja, náttúruvara og fæðubótarefna

Ólöf Þórhallsdóttir,lyfjafræðingur: Úrdráttur úr samnefndu lokaverkefni við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands Notkun náttúrulyfja, náttúruvara og fæðubótarefna til sjálfslækninga, forvarna gegn sjúkdómum og til að bæta útlit nýtur aukinna vinsælda hérlendis. Með aukinni neyslu þessara vara er talið að ti...

Meira